Norðausturhornið var aðalsvæði sumarsins að öðrum ólöstuðum

Þessi myndarlegi krókódíll kom úr Sandá um helgina. Myndina fngum við frá Jóni Þóri Ólasyni

Þó að laxveiðiár hafi víða bætt sig nokkuð eftir slakt ár í fyrra, má ósekju segja að Norðausturhornið sé „sigurvegari“ sumarsins, eða kannski það landsvæði sem kom jafnast út í bætingu. Hver einasta á frá Þistilfirðu og suður Jöklu bættu sig á milli ára og sumar bara heil mikið.

Mið við miðum við tölur angling.is frá 14.september og eflaust er búið að bæta við þær tölu víða. Selá og Hofsá bera af í tölum talið og þann 14.9 hafði Hofsá gefið 1145 (plús 47 í Sunnudalsá sem gjarnna er tekin með í Hofsá. Í fyrr var slakt ár í Hofsá, 601 lax) lítið vatn og endalaus hitabylgja með hratt minnkandi vatni. Selá er á líkum slóðum með 1117 laxa (764 í fyrra).

Í tölum talið er Jökla næst með 725 540 í fyrra) og ömurlegt að hún rækist á vegg þegar yfirfallið byrjaði snemma í semptember því veiði var lífleg fram að því.

Næst getum við nefnt hina ægifögru Hafralónsá sem var komin í 388 laxa en gaf alls 226 í fyrra) og því næst Svalbarðsá með 366 laxa, en var með 237 í fyrra. Miðfjarðará í Bakkaflóa var með 227 laxa á móti 107 í fyrra.

Þá vantar bara Sandá í Þistilfirði, þá miklu perlu. Angling.is er ekki með tölur úr Sandá, en fregir herma að hún se einnig með bætta tölu. Hún er nú  orðin eitt helst flaggskip SVFR á sama tíma og Hafralónsá er nú eitt af flaggskipum Six Rivers (áðu Strengur). Sem samt alls staðar betri tölur en 2021.