
Breiðdalsá? Hvernig er og hvað með hana? Fyrir fáum árum var hún ein magnaðasta laxveiðiá landsins en svo hrundi allt. Áin er jafn falleg og fyrr, en laxinn vantar. Það gæti þó staðið til bóta.
Þröstur Elliðason bar hitann og þungan af því að gera ána að alvöru veiðiá. Áin hefur lítinn laxastofn, er köld að upplagi og ekki sérlega hagstæð fyrir laxinn. En Þröstur hefur lengst af farið þá leiðina að sleppa gönguseiðum. Og það tókst gríðarlega vel og áin datt í að fara í fjögurra stafa tölur all nokkrum sinnum. En svo hallaði undan fæti.
Verri seiði, kuldi í hafinu? Bæði? Eitthvað annað? Hver veit, en veiðin skrapp saman og það voru ekki lengur tök á því að selja ána útlendingum, hvað þá Íslendingum. Þetta fjaraði út og í sumar er lítið af laxi og innan við 30 laxar komnir á land skv tölum angling.is.
VoV átti leið um nú um helgina og átti spjall við Sigurð Staples, gjarnan kallaður bara Súddi og hann greindi okkur frá því að nýr leigutaki tekur við að ári, Þröstur er að hætta með ána og nýtt átak verður gert . Búið er að hressa upp á seiðatjarnir og Súddi var að græja kistur fyir „spúnahollið“ sem kemur innan tíðar og mun veiða í kisturnar. Hann sagði að í sumar væri lítið af laxi og enginn staður „heitur“, en menn væru að tína upp laxa hér og þar. En það væri lítið stundað og hið glæsilega veiðihús við Eyjar að mestu í útleigu til túrista sem borga fyrir gistingu og morgunverð.
Herleifur, sem heldur ásamt eiginkonu sinni utan um gistimálin sagði að það þyrfti að hressa upp á ána, bleikjan væri á niðurleið „eins og alls staðar“ eins og hann sagði og að urriðinn í efri hluta árinnar hefði einnig verið á undanhaldi undanfarin ár. Menn hafa kenningar um fækkun sjóbleikju, ofveiði sums staðar og loftslagsbreytingar. En hvers vegna urriðinn gefur eftir er meiri ráðgáta.
En þrátt fyrir allt eru enn til menn sem hafa trú á ánni og ætla að reyna aftur. Sleppa í hana seiðum og vona það besta. Setja hana aftur á kortið sem spennandi laxveiðiá.









