Selá eiginlega sló í gegn s.l. sumar og engin á á norðanverðu landinu komst með tærnar þar sem Selá hafði hælana. Menn vonuðust eftir bata í ánni, en enginn þorði að vona eftir jafn miklum bata. Lokatölur 2018 voru 1340 laxar, 403 meira en í fyrra!

Þetta mikla vatn, – þetta kröftuga vatn… Mynd -gg.

„Við þorðum ekki að vonast eftir svona miklum bata, en seiðabúskapurinn var góður og það voru engin flóð  og svo var fyrri partur sumars frábær, blíðskapar veður, júlívatn í opnun og laxinn kominn snemma. Veðrið guðdomlegt og allt lífríkið í blóma, seiði, fuglar, allt!“, sagði Gísli Ásgeirsson í samtali við VoV.

Samt dró aðeins úr er á leið og síðsumars og í september var þetta orðið kropp. „Það voru göngur fram eftir sumri og það kom dálítið af smálaxi, ekkert svakalega mikið en nóg samt til að glæða pakkann. En samt var að kroppast fiskur inn allt sumarið og bæði í Selá og öðrum ám á svæðinu voru að koma silfurbjartir laxar langt inn á  haustið.

Sundlaugarsvæðið var heitast svo og svæðið við fossinnn. Síðan var Bjarnarhylur góður og staðir eins og Arnarhylur, Krókur og Hamarshylur frábærir í sumar, Hamarashylu var reyndar „on fire“ allt sumarið og glettilega mikill lax þar.

Síðan var það að óvenju mikið var af sjóbleikju neðst í ánni seinni part vertíðar, Bakkahylur og Langhylur „kraumuðu“ og mikið af bleikju var einnig á Brúarbreiðu. Mest var þetta 2 punda fiskur og septemberhollin voru að skoða þetta þar sem laxinn var orðinn tregur.

Annars var skiptingin að sögn Gísla 55 stórlax, 44 prósent smálax. N+anast ekkert af örlöxum, sem er óvenjulegt á þessum slóðum. „tveir til þrír“ voru yfir 100 cm…