Við höfum verið að setja inn greinar um veiðnar og skemmtilegar flugur og hafa nöfn Nils Folmers Jörgensen, Sigga Haugs og Sveins Þórs Arnarsonar borið hátt enda atorkusamir hönnuðir sem skella fram hverri gerseminni af annarri. Hér er ein frá 2002 frá Nils, Autumn Hooker sem hefur reynst einstaklega vel hvar sem hún hefur verið reynd.

Hér kemur frásögn Nils af Autumn Hooker, ljósmyndirnar eru einnig hans. „Autumn Hooker var hönnuð árið 2002. Ég reyndi hana fyrst þar sumar þegar ég var í veiðiferð með kærum vini mínum Jóhannesi Hinrikssyni umsjónarmanni Ytri Rangár. Við fengum frábæra veiði, vorum með held ég níutíu prósent af heildarafla hópsins á þessa flugu. Allar götur síðan hefur þessi fluga svínvirkað bæði hérlendis og erlendis og alls staðar þar sem hún hefur verið reynd, bæði hérlendis og erlendis. Þrátt fyrir nafnið virkar hún eigi að síður frábærlega sem vor- og hásumarsfluga. Nú í vor veiddi ég t.d. fyrstu laxana í Víðidalsá og Hrútafjarðará og ef menn kíkja í veðibækurnar í Aðaldalnum, Víðidalsá, Vatnsdalsá og raunar hvar sem er, þá leynir það sér ekki að Autumn Hooker gefur vel hvort heldur er vor, sumar eða haust.

Autumn Hooker, líkt og Radian hefur verið hnýtt úr hrosshárum/Arctic Runner. Þannig virkar flugan gerólíkt öðrum í vatninu. Hún verður „grennri“, hreyfingarnar verða frjálslegri og hefur náttúrulegan gljáa. Til að bæta þar við er dálítið af bronze Angel Hair í vængnum. Þess utan eru margir litir í vængnum, svart, appelsínugult, gulur, grænn og ólívugrænn, blár og brons. Athugið að það er bronsvír í búknum til að hún sökkvi betur, hugsað sérstaklega fyrir haustveiðina. Autumn Hooker fæst líka sem míkrótúpa, sem túpa í Frances stíl og hefðbundnum „Skandinavískum“ stíl. Túpurnar nota ég afar sjalda þar sem ég veiði oftast með hefðbundnum flugum í yfirborðinu. Öðrum hefur þó gengið vel með túpurnar. Jón Ingi hjá Atlantic Flies hnýtir þessa flugu ásamt fleirum frá mér fyir valdar verslanir og sjálfur hnýti ég þær talsvert. Seinni misserin hefur þessi fluga gefið mér um áttatíu prósent af mínum löxum í Víðidalsá, Vatnsdalsá, Hofsá og víðar og aðrir sem að hafa notað hana hafa veitt vel líka. Reyndar hefur hún verið yfirburðarfluga þegar ég hef reynt á viðkomandi stöðum.““










