Heiðarvatn í Mýrdal hlýtur að teljast með betri veiðivötnum landsins. Það hefur í raun allt, fallega umgjörð, staðbundinn urriða, sjóbirting, bleikju og jafnvel stöku lax. Það er mikið af fiski í vatninu og ólíkt mörgum öðrum vötnum sem búa yfir miklu fiskmagni, þá er mikið af silungi Heiðarvatns vel vænn, 1-2 punda eru algengir og stærri staðbundnir silungar eru tíðir. Sjóbirtingurinn er eins og sjóbirtingur, hann er bæði smár og rígvænn. Mjög stórir birtingar eru tíðir og þessi fjölbreytni gefur vatninu margt umfram önnur vötn; þegar fiskur tekur hjá þér agnið, þá veistu aldrei fyrr en viðkomandi sýnir sig, hvað er á hinum endanum.

veidistadurinn-heidavatn-3

Heiðarvatn er í Heiðardal sem liggur í fjöllum girtri kvos ofan við Mýrdal sem eins og alþjóð veit, er á miðju Suðurlandi og nánast beint ofan við þorpið Vík. Vatnið er all stórt og djúpt á köflum. Í það renna sprænur úr fjöllunum í kring, en úr því Vatnsá sem er vel þekkt laxveiðiá. Vatnsá er frekar stutt, 3-4 kílómetrar, og rennur hún í Kerlingardalsá sem er jökulvatn.

Fyrrum voru Suðurnesjamenn í Stangaveiðifélagi Keflavíkur með tvö veiðihús við vatnið og var það afar vinsælt í þeirra röðum. Húsin voru parhús sem stóð við víkina þar sem fyrst er að vatninu komið. Djúpur áll liggur inn í víkina og er það mikil veiðislóð og veitt frá báðum bökkum, sem og að margur veður út á grynningarnar í víkurbotninum og kastar út á dýpið. Fiskur tekur bæði djúpt úti í álnum og í köntunum. SVFK hrökklaðist með húsin sín burt þegar eignarhald yfir Heiðardal breyttist og núverandi eigandi, Svisslendingurinn Rudy Lamprecht, lýsti yfir ákveðnum áformum með vatnið, ána og dalinn. Um tíma var svæðið lokað öllum, en síðan breyttust áformin og farið var að selja veiðileyfi, bæði í vatnið og ána. Ásgeir Þór Ásmundsson er umsjónarmaður eigandans í þeim efnum. Stangarfjöldi er þó takmarkaður og svæðið svo vinsælt að panta verður með góðum fyrirvara, ekki síður í vatnið en ána.

Auk víkurinnar sem um getur, rölta margir út með klettóttri stöndinni að vestanverðu. Þar er yfirleitt aðdjúpt og þar eru menn alls staðar að reka í fisk. Sjaldan er farið lengra á þeirri leið heldur en að risastórum kletti sem um margt minnir á hallandi þyrlupall. Menn sem hafa gert það að gamni sínu að rölta hringinn í kring um vatnið með stöngina með sér hafa þó víða fengið fisk. VoV hitti eitt sinn veiðimenn sem lögðu bílnum á hlaðinu við veiðihús Vatnsár, óðu yfir ána og gengu inn með vatninu þeim megin. Sögðust alltaf haga veiðinni þannig og höfðu veitt vel í gegnum árin.

Ef ekinn er slóðinn inn með dalnum þá er komið að þokkalegri lækjarsprænu  skammt innan við eyðibýlin, sem varla sér tangur eða tetur af lengur, svo vandlega voru húsin fjarlægð. Þar sem umrædd lækjarspræna fellur út í vatnið er afar vinsæll veiðistaður, bæði beint út af ósnum og með bökkunum út frá straumstrengnum. Hér er besti bleikjustaðurinn og stærstu bleikjurnar veiðast yfirleitt hér. Þá erum við að tala um 2-4 punda fiska. Sjóbirtingur og urriði eru hér einnig.

Þegar nær dregur útfalli Vatnsár er einnig fín veiði, en þeir sem kaupa sig eingöngu í vatnið mega þó ekki fara nærri sjálfu útfallinu sem getur verið drjúgur veiðistaður hjá þeim sem eru með leyfi í ánni. Það er vel þekkt á slíkum stöðum, að þegar kvöldar og húmar, þá kemur bæði sjóbirtingur og lax ofan úr vatninu.

Í Heiðarvatni byrjar oftast að veiðast vel í lok mai og byrjun júní. Þó fer það eins og annars staðar nokkuð eftir árferði, en kannski enn frekar í Heiðarvatni en víðar, því vatnið liggur fremur hátt. Fyrstu vikurnar eru urriðinn og sjóbirtingurinn sem halda veiðinni uppi, seinna kemur bleikjan sterk inn. Athygli hefur vakið hversu lengi sjóbirtingur finnst í vatninu, en eins og alkunna er þá gengur mest af honum til sjávar í mai í ám austar, eða í Vestur Skaftafellssýslu. Í Heiðarvatni er hann að veiðast langt fram eftir júní. Og hann fer að skila sér aftur snemma í ágúst. Menn hafa leitt getum að því að þetta gæti stafað af mögnuðu nægtarbúrinu, þ.e.a.s. birtingurinn hefur af nægum smásilungi að taka og þarf ekkert að flýta sér til hafs til að éta, eins og fallvatnsbirtingar austar á landinu þurfa að gera. Þetta er prýðis kenning hvort sem hún er rétt eða ekki.

veidistadurinn-heidavatn-2VoV hefur oftar verið að veiða í ánni en vatninu. Framan af sumri höfum við þó all nokkrum sinnum skotist. Einn okkar fór einhverju sinni um miðjan júní og það var ekki friður fyrir vænum sjóbirtingi. Stoppað var stutt og börnin mest að veiða, en alls var sjö birtingum landað, allt að 70 sentimetra fiskum. Þeir voru ekki gengnir út og þeir voru í flottu ásigkomulagi. Öðru sinni, í mai, var ritstjóri við vatnið og komið kvöld. Lítið hafði gengið, en síðan tók fallegur 45 sentimetra geldbirtingur og stuttu seinna annar svipaður. Sæll og glaður settist ég upp við stóran stein og horfði út á speglslétt vatnið. Eftir stutta stund í kyrrðinni vakti mig af nánast blundinum kunnuglegt gagg í hlíðinni fyrir ofan mig. Ég kíkti varlega yfir grjótið og í hlíðinni nokkra metra fyrir ofan mig var refur sem hafði ekki hugmynd um að ég væri þarna á bak við stein