Árnar sem vantaði inn í krufningu á statistík á fimmtudaginn eru nú búnar að skila sér og ekki úr vegi að skoða þær m.t.t. þess að allir eru að velta fyrir sér hversu gott þetta sumar er, en sem komið er….
Helst var það að við söknuðum Urriðafoss, en talan fyrir hann er nú komin. Þar gaf vikan 70 laxa á tvær stangir og alls var Urriðafoss þar með kominn í 435 laxa. Það er afburðaveiði á tvær stangir. Það eru 35 á stöng og ef að veitt er alla daga vikunnar er það 5 laxar á stöng á dag. Hins vegar kemur statistík Urriðafoss bjagað fram í tölvu ritstjóra þannig að við getum lítið meira sagt. Annað en að þarna hefur verið frábær veiði.
Laxá í Kjós. Hún var með ágætis viku, 114 laxa og flutti sig upp í 190 laxa á sínar átta stangir. Fyrri vikan var með 45 laxa þannig að þarna er stígandi…og gott betur, staða árinnar er betri en á sama tíma í fyrra, sem er sjaldgæft yfir línunna, var í 190 löxum á móti 123 í fyrra.
Stóru Laxá vantaði, en hún er komin núna. Vikutalan var 117 laxar sem fleytti henni í 149 laxa. Það er ekki samanburðartala miðuð við sama dag á angling.is, en þetta er betri veiði en í fyrra því að þann 13.7 í fyrra var áin með 96 laxa. Mun betra í ár. Fimmta áin sem er betri en á sama tíma í fyrra á viðmiðunarlista angling.is.
Haukadalsá var með 41 lax í síðustu viku og fór með því í 84 laxa á 5 stangir. Vikan á undan var með 27 laxa, þannig að það er stígandi. Á sama tíma í fyrra voru komnir 149 laxar úr ánni.
Skjálfandafljót var með 22 laxa í vikunni, 21 lax í vikunni þar á undan, en þar er veitt á sex stangir. Heildartalan þar 65 laxar. Það vantar sambærilega samanburðartölu frá síðasta ári, en þann 13.7 í fyrra voru komnir 160 laxar í bók.
Straumfjarðará datt inn og er komin með 60 laxa á þrjár stangir. Hún virðist hafa tekið vel við sér því hún var með 42 laxa viku, fór því úr 18 í 60. Straumfjarðará var með 74 á sama tíma í fyrra. Lítill munur, en minna samt.
Loks Deildará, hún fór í 40 laxa á sínar þrjár stangir. Vikan gaf 23 laxa. Við höfum ekki samanburðartölu frá síðasta ári, en munum glöggt að hún fór fanta vel af stað með fínar stórlaxagöngur.










