Þessu lýkur senn. Við byggjum frétt þessa á níu nýjum lokatölum í viðbót við þær fjórar sem við birtum um daginn. Á næstu dögum og vikum bætast hinar við. Á morgun verðum við síðan með vikutölurnar úr þeim ám sem enn eru opnar….
Þverá/Kjarrá: 2060 laxar var niðurstaðan þar, 1902 í fyrra þannig að þetta er ívið betra og kunnugir segja að munurinn hefði verið meiri ef að skilyrði hefðu verið hagstæðari, alveg talsvert hafi verið af laxi. Áin lokaði einum degi eftir að við birtum síðustu vikutölu.
Blanda: Síðasta vika skilaði engum laxi, enda yfirfall og engin ástundun. 1433 var lokatala árinnar, í fyrra 2386, þannig að munurinn var verulegur.
Laxá á Ásum: Flottur viðsnúningur og 51 lax síðustu vikuna. Áin endaði með 1108 laxa og var með 620 í fyrra….hér er vikuveiðiröðin: (51, 115, 72, 80, 64, 89, 101, 98,63, 133, 107, 79 og 31).
Selá: Lokatalan þar var 937 laxar. Í fyrra 830, þannig að segja má að áin sé á hægum batavegi. Síðasta vikan gaf 27 laxa og vikutöluröðin er þessi, með síðustu viku: (27, 24, 68, 23, 128, 67, 93, 135, 123, 110, 95 og 27)
Elliðaár: Ágætis bati frá síðasta ári, lokatalan þar 890 laxar og skert lokavika gaf 14. Í fyrra var þetta 675 laxar. Mun líflegra í ár. Vikutölurnar með þeirri síðustu voru þessar: (21, 25, 66, 23, 36, 58,70,102, 130, 107 og 110)
Laxá í Aðaldal: Talsverð niðursveifla þar, en að venju hífðu risalaxar upp stemninguna þar. Lokatalan þar er 709 laxar en var 1207 í fyrra. Þetta er í raun léleg útkoma hjá Drottningunni. Lokavikan gaf 26 laxa og vikutöluröðin er þessi: (26, 17, 39, 44, 33, 49, 57, 70, 57, 146, 71 og 39)
Hítará: Þreytt í lokin, enda frekar lítið af fiski. Lokatalan 475 laxar, í fyrra 779 fiskar. Lokavikan 16 laxar. Röðin hennar er þessi, með þeirri síðustu: (16, 11, 64, 22, 45, 17, 50, 67, 73, 49, 23 og 10)
Straumfjarðarðará: Lítil ástundun lokavikuna en samt 6 laxar á land, sem setur hana 4 löxum yfir síðasta sumar! 352, 348 í fyrra. Vikutölurnar hennar eru þessar( 6, 10, 65, 37, 8, 21, 9, 25, 44, 51, 16, 42 og 18)
Laugardalsá: Slappt ár í Laugardalsá, lokavikan með 9 laxa(þar á meðal einn geðslegan eldislax) og lokatalan 175 laxar, í fyrra 251 lax. Það vangar svolítið uppá vikurnar í Laugardalsá.
Krossá: Sama með hana og Laugardalsá, vantar fullt af tölum, en lokatalan er 116 laxar. Við höfum ekki lokatölu síðasta árs, en hún var talsvert lægri þannig að eþtta er góð tala úr ánni, Krossá er lítil á sem líður fyrir langavarandi þurrka. Að hún nái þriggja stafa tölu í ár er flott.










