Urriðinn og GoPro græjan

Þröstur Elliðason eigandi Strengja, sem er meðal annars leigutaki Minnivallalækjar sagði frá vægast sagt furðulegri atburðarás við lækinn eitt sinn undir yfirskriftinni: Ótrúleg saga úr Minnivallalæk 8 maí.

Höfum engu við þetta að bæta, Þröstur hefur orðið, en frá þessu greindi hann á FB síðu sinni: „Það hefur verið erfitt í vor í Minnivallalæk en þegar skilyrði batna geta skeð ævintýri eins og þann 8 maí er tveir erlendir veiðimenn fengu 18 fiska! En hámarkið var er þeir voru að þreyta fisk og annar fiskur elti þann sem var á, en allt í einu kom risaurriði úr hylnum og réðst á þann sem var að elta og keyrði hann niður í botninn þar sem hann virtist rotast. Veiðimennirnir voru með GoPro og voru að mynda neðanvatnsborðs og náðu mynd af þessu. En sá stóri lét ekki þar við sitja heldur réðst síðan á myndavélina og tókust á fiskur og veiðimaður um vélina þar til fiskurinn gafst upp og hvarf í hylinn. Var þetta allt myndað og vonandi verður nothæft myndband af þessu birt síðar.“

Ekki bara GoPro….

Óhætt er að segja að allt sé þetta með ólíkindum og tilhlökkunarefni að sjá myndbandið þegar þar að kemur. Þetta er ekki eina dæmið sem við höfum heyrt nýverið þar sem fuglar og fiskar taka illa á móti aðskotahlutum sem þeir meta svo að þeim stafi ógn af. Þannig voru t.d. erlendir veiðimenn að mynda með dróna við Víðidalsá í fyrra. Þegar dróninn sveif yfir einn hylinn gersamlega sturlaðist spói nokkur, vall hátt og réðist að drónanum. Skipti engum togum að óðar voru tuttugu aðrir spóar búnir að svara kallinu og gerðu þeir slíkan aðsúg að drónanum að hann féll til jarðar og lauk þar sögu hans. Jafnan má sjá fugla, spóa og fleiri veitast að náttúrulegum vargfuglum á borð við kjóa, krumma og sílamáf, en aðra eins hörku höfðu umræddir veiðimenn aldrei séð og má draga þá ályktun að hið óþekkta sem fylgi drónanum, útlitið og hreyfingar hans, hafi sett allt á yfirsnúning í viðbrögðum „heimamanna“.