Wish fluguhjólin kynnt á nýrri vefsíðu

Wish hjólin eru vissulega fallega hönnuð. Mynd af www.wish.is
Hin seinni misseri hafa stórhuga Vestfirðingar verið að hanna og framleiða fluguhjól til að standast hæstu gæðakröfur. Gengur framleiðslan undir nafninu Wish og fyrirtækið Fossdalur ehf og nýverið opnuðu þeir Vestfirðingar nýja vefsíðu, www.wish.is þar sem menn geta forvitnast um hjólin, tilurð þeirra of vonir framleiðenda og væntingar. Við birtum hér frétt sem Fossdalur sendi okkur fyrir skemmstu.
Fréttin er undirrituð af Jóni Pálii, markaðsstjóra Fossdals og þar stendur: “Fossadalur ehf, sem framleiðir eina íslenska fluguveiðihjólið, hefur opnað nýja heimasíðu, www.wish.isÞar er að finna greinargóðar upplýsingar um hjólin ásamt ýmsum fróðleik s.s. áhugaverðum viðtölum við íslenska veiðimenn í greinarflokknum “Veiðimaður vikunnar” WISH fluguveiðihjólin hafa verið í þróun frá 2004. Hjólin eru að öllu leiti hönnuð og framleidd á Ísafirði og eru smíðuð úr hágæða efnum.
Óhætt er að segja að WISH hjólin frá Fossadal hafi fallið í góðan jarðveg hjá íslenskum veiðimönnum. Hjólin eru glæsileg hönnun, sterk og endingargóð. Ekki spillir fyrir að þau henta í alla veiði og er engin fiskur of stór, nú eða of smár fyrir WISH hjólin. Höfum við orð reyndra veiðimanna að hjólin séu nú orðin sambærileg við það besta sem gerist.”
