
Fram hefur komið, bæði í Fiskifréttum og manna í millum að félagið Six Rivers, í eigu Jim Ratcliffe, hefur sent inn tilboð til Veiðifélags Svalbarðsár. Hreggnasi er með ána út næsta sumar, 2026 og í aðdraganda þess hefði áin væntanlega farið í útboð. Og kannski verður það raunin þrátt fyrir þetta skref Six Rivers.
Fiskifréttir segja að tilboðið sé til 10 ára og hljóði upp á 280 milljónir króna. Inni í því er upphæð til landgræðslu sem og endurbóta á veiðihúsi árinnar. En einnig er í tilboðinu stungið upp á því að Six Rivers reisi nýtt og mun betra veiðihús, í anda þess sem gert hefur verið á vegum félagsins annars staðar á þessum slóðum, t.d. við Miðfjarðará í Bakkaflóa.
Sem fyrr segir á Hreggnasi tvö sumur eftir af leigusamningi sínum þannig að komi til þess að Six Rivers taki við verður það ekki fyrr en frá og með sumrinu 2027. Svalbarðsá er eitt af flaggskipum Hreggnasa þannig að búast má við því að þar á bæ sé hafin vinna við að bregðast við tilboði Six Rivers.
Six Rivers hefur nú umsjón með öllum ánum í Vopnafirði (Selá, Hofsá, Sunnudalsá og Vesturdalsá) og Hafralónsá í Þistilfirði er einnig á þeirra framfæri. Þar til fyrir skemmstu var einmitt Hreggnasi leigutakinn þar, en hélt áfram með umboðssölu. Six Rivers, eða öllu heldur Jim Ratcliffe, á mikið í laxveiðiréttindum Hafralónsár og við Svalbarðsá er hann eigandi að Svalbarðsseli, sem einn besti veiðistaður árinnar er kenndur við. Six Rivers er því að teygja út anga sína.
Fari svo að Six Rivers taki við Svalbarðsá 2027 þá má reikna með verulegum breytingum á fyrirkomulagi laxveiða þar. Þekkt er að síðustu ár hafa verið settar nýjar veiðireglur í Vopnafirðinum. Styttur veiðidagur, takmörk hversu marga laxa má veiða úr einum hyl og á einni vakt. Flotlínur og ekkert sem sekkur, hvorki flugur eða taumar. Þetta vakti umtal á sínum tíma og til voru þeir sem hættu að veiða í umræddum ám, en aðrir komu einfaldlega í staðinn. Six Rivers hefur breytt kúltúrnum á vissann hátt. Vissulega hafa flestir leigutakar stærri ána verið að eltast við efnaða útlenda veiðimenn. Six Rivers tekur skrefið hins vegar lengra. Freistar þess að ná inn þeim sem eru efnamestir. Þetta er ekki ólík hugmynd og var á bak við þá aðila sem stóðu að stofnun og uppbyggingu hótelsins að Deplum í Skagafirði. Sem vel að merkja hafa haft ítök í Hölkná í Þistilfirði fyrir viðskiptavini sína.









