AÐ TAKA 10 PUNDA ÞORSK Á SNÆLDU

Frá Ísafirði. Víða fyrir vestan er möguleiki á góðri strandveiði.
Í spjalli okkar við Hauk Bachmann hjá I.Guðmundsson á dögunum ræddi hann um áhuga sinn á því að rannsaka strandveiði hér á landi. Óhætt era ð taka undir þau orð hans að hér er óplægður akur sem gæti verið skemmtilegur. Við rifjuðum upp nokkur dæmi um svoleiðis veiðiskap sem við höfum heyrt í gegnum tíðina.

Til að mynda heyrðum við af manni sem eyddi slatta af sumarleyfi sínu í sumarhúsi við Eyjafjörð. Þetta var í miðjum júlí. Stöngin var með, en ekkert planað og á daginn kom að allar skemmtilegu bleikjuárnar í kring voru meira og minna bókaðar. Þá skaut einhver því að okkar manni að prófa bara fjöruna. Honum var bent á klappir sem ganga út skammt frá afleggjaranum þar sem ekið er annars vegar yfir Vaðlaheiði og hins vegar áfram til Grenivíkur. Þar nokkru áður eru miklar klappir og þangað fór þessi kappi. Hann sagði okkur síðan frá því að veiði hefði verið góð. Hann var bara með netta spinnstöng og 10 gramma Lippu. Aflinn var blandaður, þyrsklingar, 3 til 5 punda þorskar, stöku koli ef hann dró hægt, nokkrir 3 til 4 punda ufsar sem voru “brjálaðir” og loks nokkrar 2 til 3 punda sjóbleikjur. Annan dag fór veiðimaður þessi út með Eyjafirði að vestanverðu og skammt frá fiskvinnslustöð sem þar stendur var líka góð veiði. Aflasamsetningin hin sama. Þess má geta, að ferðaþjónustuaðilar að Sílastöðum við Akureyri, sem leigja út sumarhús við Fögruvík, auglýsa m.a. með húsum sínum að möguleiki sé á góðri fjöruveiði nærri húsunum.
Þá var Orra Vigfússyni einu sinni boðið í Héðinsfjörð og sagði hann okkur að í það sinnið hefði bleikjuveiðin ekki verið upp á marga fiski. “Við forum hins vegar að kasta flugu bara í sjóinn og þar fengum við þorska, suma helvíti væna,” sagði Orri okkur á sínum tíma. Sjálfur notaði hann Snældu, dró hægt og fékk þorska allt að 10 pundum. “Það var virkilega gaman að eiga við þá, þeir tóku þétt og köfuðu kraftalega, ekkert líkt því sem gerist er maður er í sjóstöng þó ekki sé ég að lasta það,” sagði Orri.
Haukur Bachmann sagði okkur á dögunum, að erlendis, t.d. víða í Skandinavíu, væri strandveiði af þessu tagi afar vinsæl og til að mynda veiða Danir mikið sjóbirting frá ströndum. Þetta eru vinsælar veiðar og hafa ferðaþjónustuaðilar og veiðiréttareigendur miklar tekjur af. Sums staðar hér a´landi er rík hefð fyrir strandveiði og vitum dæmi þess að menn leiki sér ekki síður með fluguveiði. Haukur sagði okkur að víða fyrir austan væru til menn sem aldrei sæust í fiskbúðum.
Þetta er veiðiskapur sem vert væri að skoða nánar, enda hægt að stunda þetta árið umkring og þar með ekki lengur ástæða til að bíða eftir 1.apríl, 1. mai eða 1.júní….hvað þá að vera neyddur til að spóla í land og hætta í síðasta lagi 20.október.
