Stóra byrjar með trukki

Leigutakinnn með einn í smá ýktri uppstillingu, en glsæslegt eintak engu að síður

Þær hafa nú verið misjafnar opnanirnar en í Stóru Laxá er ekki sjens að kvarta. 50 laxar á fyrstu 4  dögunum. Og laxar búnir að veiðast í Soginu líka. Suðurlandið í góðum gír. Stóra var stundum kölluð af „gárungunnum “ tóma Laxá. Það passar ekki lengur

Að landa 50 löxum í Stóru Laxá á fjórum fyrstu dögunum er meira en reikna má með. Þetta telst vera frábær byrjun. Gamalamaður sem ritstýrir þessum vef man eftir flottum skotum í opnun, sérstaklega á svæði 4 og þá í Hólmahyl. en þessi tíðindi slá eiginlega allt út. Verður fróðlegt að sjá hvert framhaldið verður.