Bellibrögðum beitt við þann stóra

Feðgarnir með laxinn stóra. Myndin er fengin af FB síði Laxaár.

Í fyrra morgun veiddist loks svokallaður „alvöru“ stórlax norðan heiða. Áður voru stöku á Vestanlands að státa af slíkum, Þverá, Laxá í Leirársveit og ef til vill fleiri. En svo datt drottningin Laxá í Aðaldal inn með sitt framlag.

Eftir opnan tók við holl sem að mestu er skipað leiðsögumönnum og öðrum botnvörpungum sem tengjast æanni, m.a. kokkinum í Nesi, Ólafi Þór, sem nefndur hefur verið „Helvítis kokkurinn“. Kíkjum nú á færslu af FB síðu Laxár: „Morgunvaktin í laxá var frábær það komu 5 laxar á land. Holl 2 í laxá er guidaholl þar sem valin maður er í hverju rúmi þar er þettasti kjarninn sem stendur að ánni að veiða saman ásamt mökum og afkomendum. Ólafur Helgi sem oft er kallaður “Helvítis kokkurinn” átti heimasvæðið í Nesi og deildi stönginni með Degi syni sínum, Dagur var fyrr um morguninn búinn að missa fallegan fisk í Kirkjuhólmakvísl.

Þeir feðgar héldu þá í Sandeyrarpoll þar sem Óli reisti stórann fisk, korter var eftir af vaktinni og nú voru góð ráð dýr, Dagur fékk næst val á flugu og var SunRay Bismo settur undir. Eitt rennsli og sá stóri negldi hana. Upphófst mikli barátta. Fyrir þá sem ekki þekkja þá er Sandeyrarpollur ekki stór staður á mælikvarða Laxár. Fiskurinn setti sig fastann í dýpinu neðst í hylnum og hreyfði sig hvergi. Þá kom tveggja áratuga guida reynsla Óla sér vel þar sem beita þurfti bellibrögðum til að ná laxinum aftur af stað, tók hann þar næst strikið niður í Dýjaveitur þar sem honum var landað eftir fjörutíu mínutna baráttu og niðurstaðan var 102 cm metra hængur, nýgenginn og glæsilegur.“