
IFFS, Íslenska fluguveiðisýningin, sem er sjálfseignarstofnun, hefur haldið sýningar síðustu árin og eytt stórum hluta af hagnaðinum í styrki til hinna ýmsu aðila er tengjast fluguveiði og náttúruvernd. Stefnir IFFS að því að stærsta sýningin til þessa verði haldin í mars næst komandi. IFFS safnaði tæplega 900þúsund krónum á síðasta ári og úthlutaði nýlega styrkjum úr þeim potti.
Í fréttatilkynningu sem IFFS sendi frá sér nýverið segir m.a. eftirfarandi: “Íslenska fluguveiðisýningin, sjálfseignarstofnun (IFFS), safnaði tæplega 900.000 kr. árið 2019 og mun þeim fjármunum verða varið i þágu meginmarkmiðs stofnunarinnar, sem er að standa vörð um íslenska náttúru og dýralíf með áherslu á vernd og uppbyggingu villtra ferskvatnsstofna. Stefnt er að því að næsta sýning verði haldin í mars 2020. Stjórn Íslensku fluguveiðisýningarinnar hefur ákveðið að útdeila 600.000 kr. af þeim fjármunum sem söfnuðust á sýningunni árið 2019 til stofnana og sjóða sem hafa sömu eða sambærileg markmið og stofnunin. Eftirtaldir aðilar hljóta styrk vegna ársins 2019, en allir þessir aðilar hafa verið áberandi í umræðunni um skaðsemi sjókvíaeldis á villtum laxi. Hver um sig hlýtur 200.000 krónur
Icelandic Wildlife Fund hefur verið mjög áberandi í málflutningi sínum um skaðsemi sjókvíaeldis á villtum laxi á árinu. Þar ber helst að nefna mikil og áberandi miðlun upplýsinga til almennings og gerð kynningarefnis um skaðsemi sjókvíaeldis.
NASF er sjóður sem var stofnaður í tengslum við baráttu Orra Vigfússonar fyrir Atlantshafslaxinum. Íslandsdeild NASF hefur verið áberandi á árinu 2019 í umræðum um skaðsemi sjókvíaeldis á villtum laxi.
Jóhannes Sturlaugsson hjá Laxfiskum á langan feril að baki í fiskirannsóknum og þar af hefur hann á vegum rannsóknafyrirtækis síns Laxfiska í tæpa tvo áratugi stundað framsæknar rannsóknir á lífsháttum og umhverfi íslenskra ferskvatnsfiska, bæði í ferskvatni og sjó. Þar má sérstaklega nefna miklar rannsóknir Jóhannesar á lífsháttum Þingvallaurriðans sem skilað hafa mikilvægum grunnviðmiðum sem nýting og verndun Þingvallaurriðans tekur mið af. Þá hefur Jóhannes verið áberandi í umræðunni um skaðsemi sjókvíaeldis á villtum laxi.
– – –









