Í sjötta tölublaði Veiðimannsins frá árinu 1948 er lýsing á hugsanlega stærsta laxi sem veiðst hefur fyrr og síðar. Textinn er svohljóðandi: -Stærsti lax (þ.e.a.s. Atlantshafslax, salmo salar) sem veiðst hefur, vó 103 ensk pund og 2 únsum betur, eða rétt 47 kíló.

Veiðiþjófar í Forthfirði á Skotlandi fengu þennan happadrátt í ósum Devonfljóts í Skotlandi og voru svo innblásnir af hreinum anda veiðimennskunar að þeir komu vottfestri þyngdinni á framfæri við þáverandi laxveiðimálastjóra Skotlands, Mr. W.C.Calderwood, gegn því, að hann sækti þá ekki til laga fyrir tilvikið. Innblásinn af anda vísindanna gekk herra Calderwood að þessu, til þess að geta fengið staðfest, að slíkur jötunn hefði veiðst. -Laxinn var hængur, og auðvitað ekki laust við að æskublóminn væri dálítið bliknaður. „Ófrýnilegasta laxkind, sem ég hef á ævi minni séð,“ sagði einn veiðiþjófurinn.










