Þeir félagar hjá Fishpartner hafa verið með þeim duglegri að grafa upp ný og spennandi svæði, sérstaklega hvað silung varðar. Eitt það nýjasta hafa þeir sjálfir gefið nafnið Blöndukvíslar. Gunnar Örn Petersen, einn eigenda Fishpartner segir svæðið bæði víðfeðmt og spennandi. Það sé krefjandi og ekki alllra, en þar dvelji stórir urriðar sem frábært sé að kljást við.“ Þá eru þeir félagar einnig að útvíkka Köldukvíslarsvæðið.

„Við fórum að senda þarna viðskiptavini í fyrra og fórum líka sjálfir í rannsóknartúra. Þetta svæði er tvískipt, er sem sagt vestan og austan við Blöndu. Aðaláin þarna er Seyðisá, sem er fræg fyrir að þangað komst sjóbleikja einna lengst inn í land til hrygningar áður en að Blönduvírkjun lokaði á hana. Þá urðu miklar breytingar á svæðinu. Bleikja braggaðist um tíma í Blöndulóni, en svo fjaraði undan henni vegna ofsetningar. Seyðisá missti sjóbleikjuna sína, en þarna, í henni og öðrum ám og lækjum, er mjög vænn staðbundinn silungur, einkum þó urriði,“ sagði Gunnar Örn Petersen í samtali við Veiðislóð fyrir skemmstu.

Blöndukvíslar
Dramatík í Blöndukvíslum. Myndin er frá Fishpartner

Í kynningartexta á heimasíðu Fishpartner segir m.a.: „Vatnasvæðið ofan Blöndulóns samanstendur af sjö ám og ótal lækjum. Árnar eru Seyðisá, Beljandi, Þegjandi, Kúlukvísl og Stórilækur vestan Blöndu og Herjólfslækur og Haugakvísl austan Blöndu. Undanfarin ár hefur svæðið verið veitt af lokuðum hópi og lítið stundað en ljóst er af aflatölum að talsvert magn af urriða og bleikju er á svæðinu. Þetta er því einstakur kostur fyrir þá sem vilja veiði straumvatni í afskekktri náttúru hálendisins. Aðgengi að svæðinu er takmarkað á þann hátt að hægt er að komast að öllum ánum á bíl en síðan þarf að ganga meðfram þeim. Hægt er að gista á Hveravöllum eða í Áfanga. Veitt er á sex stangir vestan Blöndu og fjórar stangir austan Blöndu. Seldar eru stakar stangir. Aðeins er heimilt að veiða á flugu. Öllum fiski skal sleppt.

Blöndukvíslar
Dæmigerð mynd fyrir Blöndukvíslarsvæðið.

„Þarna er góð veiðivon, einn hópur sem að fór á okkar vegum var í fjóra daga og landaði 15 urriðum og missti góðan slatta að auki. Einhverjum kann að finnast þetta fremur rýrt, en þetta er stórir fiskar og það er akkúrat svona veiði sem að margir kjósa sér og láta sig dreyma um. Að vera einir með sjálfum sér og flugustönginni, í ósnortinni náttúru og eiga von á allt að 70 cm urriða eða jafnvel stærri. Þarna komast menn að ánum á jeppum, en öll vatnsföllin eru veidd á göngu. Menn geta valið um margt og gengið eins og þeir geta. Ég tók 28 km og svaf úti og veiddi mjög vel. Ógleymanleg ferð,“ bætti Gunnar Örn við.

Opna veiðihús fyrir Köldukvísl og Tungná

Þá er mikið í gangi hjá félögum á veiðisvæði Köldukvíslar og Tungnár. Nýtt veiðihús verður tekið í gagnið í vor og nýtt svæði verður kynnt.

„Þetta með veiðihúsið er spennandi verkefni sem hefur tekið okkur langan tíma að landa. Það er gamall leitarmannakofi þarna upp frá sem er í eigu Ásahrepps og Ytri Rangárþings og heitir Þóristungur. Þarna höfum við getað farið með veiðimenn en húsið er gamalt og var farið að liggja undir skemmdum. Við reyndum að leigja á sínum tíma og buðum hæst, en allt kom fyrir ekki. Þá vildum við kaupa það og buðum aftur hæst, en allt kom fyrir ekki. Loks tókst okkur að landa 11 ára leigusamningi þar sem við skuldbindum okkur til að gera húsið alveg upp. Í því höfum við nú staðið í allnokkur misseri. Tekið húsið í gegn um það er nú að verða klárt. Það minnkar svolítið við breytta innréttingu, en í því verða 6 tveggja manna herbergi, stofa og forstofa með vöðluherbergi auk eldurunarasðstöðu að sjálfsögðu.

Kritsján Páll Rafnsson, Kaldakvísl
Kristján Páll Rafnsson, einn eigenda Fishpartner með rígvænan urriða af hinu nýja efsta svæði Köldukvíslar. Myndin er fengin af FB síðu Fishpartner

Þá fórum við í vísindaveiðitúra ofar í Köldukvísl en við höfum áður farið og það gafst svo sannarlega vel. Til þessa hefur Kaldakvísl verið tvískipt. Neðra svæðið frá ósi við Sporðöldulón að fossinum Nefja. Það eru um sex kílómetrar. Síðan er það sem áður var efra svæðið en verður nú miðsvæðið. Það er frá Nefja að Fagrafossi. Hluti þess svæðis er í djúpu gljúfri með einstaklega erfiðu aðgengi, en við fórum samt á sínum tíma í stórkostlega bátsferð niður gljúfrin og köstuðum í veiðistaði sem enginn hafði kastað í áður. Og fengum marga fiska og væna. Tungná er á sínum stað, en menn geta átt á hættu að fá yfirfall í hana. En þegar hún er í standi þá er hún eftirlæti margra þeirrra sem þar veiða á okkar vegum. En efsta svæðið nú er svæðið fyrir ofan Fagrafoss og þá erum við í raun komnir inn á Sprengisand.

Við fundum þetta svæði í fyrra og það er kannski ekki eitthvert svakalegt magn af fiski þarna, en þeir eru stórir. Það eru slóðar að svæðinu frá Sprengisandsvegi og svo ganga menn og leita, kasta á líklega staði. Þetta er sama örævaævintýrið og í Blöndukvíslum, menn eru einir með sjálfum sér á reginöræfum og setja í rosalega dreka. Í einum túr sem við fórum þarna lönduðum við 7 urriðum á bilinu 62 til 68 cm, fiska á bilinu 5 til 7 pund og við sáum risa sem voru varla undir 10 pundum.“