Samantekt okkar heldur áfram, við rennum nú yfir þær upplýsingar sem við höfum yfir hið stórkostlega svæði Sléttu og Þistilfjörð. Því miður var ekki toppár á þeim slóðum, en menn lentu samt í ævintýrum, menn lenda alltaf í ævintýrum.

Ef við byrjum á því sem við höfum úr Þistilfirði, þá var gamla góða Svalbarðsá nokkuð lík því sem verið hefur síðustu sumur. Hún gaf í sumar 324 laxa á þrjár stangir samanborið við 338 í fyrra, nánast sama veiði. 2016 gaf 368 laxa, 2015 vantar lokatölu, 2014 voru 403 laxar og 2013 306 stykki. Afar jöfn veiði.
Yfir í Hafralónsá, sem Hreggnasi er að stærstum hluta líka með. Þann 12.9 voru komnir 211 laxar á land þar skv tölum frá angling.is, en ekki kom fram hvort að um lokatölu væri að ræða. Það er allavega ekki langt frá því þar sem veiði í Hafralónsá hefst mun fyrr heldur en í ám í næsta nágenni. Þetta er voða svipað og síðustu sumur, að vísu vantar 2017 og 2016 á angling.is en 2015 voru laxarnir 282, 2014 voru þeir 280 og 2013 voru þeir 354. Þetta eru engar sveiflur, en minna heldur en áin hefur náð fyrir fleiri árum síðan, 2010 fór hún t.d. yfir 600 laxa.
Sandá er þarna líka og er hún síðast en ekki síst af Þistilfjarðaránum. Samkvæmt upplýsingum frá leigutökum á þeim bæ var heildarveiði sumarsins 263 laxar eða 6 löxum meira en 2017, rétt um 2% aukning. 87% laxanna var sleppt. Það er hæsta sleppihlufall frá upphafi. Stærstu: 104 sm hængur í Efri 3ja laxa. Veiðimaður Haukur Geir Garðarsson.
Ef við höldum út á Melrakkasléttu, þá var niðursveifla þar. Í Ormarsá voru 142 laxar færðir til bókar, það er hrun frá í fyrra og hvað þá miðað við meðalveiði sl. 7 ára – sem er ríflega 500 laxar. Í fyrra var veiðin 331 lax. Í Deildará var svipað uppi á teningunum, en sú á fer sjaldnast í sömu hæðir og Ormurinn þegar vel gengur. Í sumar var þar landað 162 löxum, en síðustu þrjú ár var þar mun betri veiði, 2017 komu 238, 2016 voru þeir 262 og 2015 voru landaðir laxar 303.
Þær upplýsingar sem við byggjum hér á eru frá Hreggnasa sem er leigutaki Hafralónsár og Svalbarðsár, angling.is sem hefur fylgt eftir gangi mála í Deildará og aðstandendum leigutaka Sandár og Ormarsár. Á þessu svæði var svipað vandamál og vestar með Norðurlandinu, lítið gekk af smálaxi. Austar, í Vopnafirði og niður í Jöklu var hins vegar mun betra ástand, hvernig sem á því stóð.










