Það er jafnan skemmtilegt og fróðlegt að fá upplýsingar um gang mála í ám sem eru minna í sviðsljósinu heldur en þær þekktari sem eru með vikutölur vertíðina á enda á angling.is. Ein slík er Mýrarkvísl og Matthías Þór Hákonarson sendi okkur vertíðarskýrslu.

Þetta hafði Matthías að segja um Mýrarkvísl 2018: „Veiðin í Mýrarkvísl 2018 var aðeins betri en þurrkasumarið 2017 og endaði lokatalan í 83 löxum sem verður þó að teljast slappt miðað við árin á undan og fylgir þetta bara öðrum ám á norðurlandi sem hafa ekki fengið almennilegar smálaxagöngur seinustu tvö sumur. Sumarið 2018 voru í raun kjör aðstæður í ánni, framan af sumri rigndi yfirleitt á nóttinni og um haustið ringdi flesta daga svo vatnsmagnið í Mýrarkvísl var eins og best verður á kosið og tel ég það líklega skýringu á því að 2018 veiddist meira af laxi en sumarið á undan þrátt fyrir að það hafi verið mun meira af laxi í ánni 2017. Einnig gæti spilað inní að við löguðum nokkra merkta veiðistaði sem hafa ekki gefið mikla veiði seinustu árin, sem skiluðu flestir ágætri veiði og þannig betri veiðidreifingu en oft áður. Veiðin í Júlí og ágúst var kropp en septemberveiðin bjargaði í raun sumrinu fyrir okkur og var betri en júlí og ágúst og er þetta annað árið í röð sem það gerist.

Urriðaveiðin var hinsvegar stórgóð í sumar eða um 1100 urriðar. Sumarið í sumar var fyrsta árið þar sem við opnum fyrir urriðaveiðina 1. apríl og kom vorveiðin alveg einstaklega vel út þar sem meðalstærðin í vorveiðinni var um 50 sm urriðar. Nú bíðum við bara eftir næsta sumri og er ég bjartsýnn að það verði gott sumar á Norðurlandi öllu.“