Frekar róleg vertíð í Veiðivötnum

Hér er kóngurinn úr Veiðivötnum þetta árið, 5,15 kg veiddur af Magnúsi í Skeifunni. Ekkert myndakredit fylgir myndinni.

Stangaveiðitímanum í Veiðivötnum lauk 18.8 og þá taka heimamenn við og draga sér björg í bú bæði með netum og stöngum. Svo virðist samkvæmt línuriti sem nær aftur til 2022 og er að finna á heimasíðu Veiðivatna, að vertíðin hafi verið í rýrara lagi. Alltaf verða samt til margar ógleymanlegar minningar.

Hér er Halldór með með 10 pundara úr Hraunvatni.Myndin er fengin að láni af vef Veiðivatna og skráð á Ragnar Norðfjörð.

En skv heimasíðunni veiddust þetta árið 7775 urriðar og flestir þeirra í Litlasjó að venju, eða 3383. Cirka helmingurinn sem sagt. Sá stærsti úr vötnunum að þessu sinni var 5,15 kg urriði sem veiðimaður að nafni Magnús veiddi í Skeifunni. Annar svona dreki, 5 kg slétt kom úr Hraunvötnum. Meðalþungi urriða í vötnunum var 1,26 kg.

Það veiðist meira af bleikju en urriða í vötnunum og sum þeirra eru hrein bleikjuvötn þar sem urriði sést varla. Alls veiddust 11259 bleikjur og eins og fyrri daginn veiddist lang mest af bleikjunni í Snjóöölduvatni, eða 4982. Bleikjan er all miklu smærri en urriðinn í Veiðivötnum, meðalþyngdin aðeins 0,38 kg og stærsta bleikjan 2 kg úr Snjóölduvatni.

Annars er hægt að stúdera þetta allt saman miklu betur á veidivotn.is. Öllu vel haldið til haga af miklum myndarskap á þeim bænum. Veiðivötn eru perla og ekki aðeins vegna þess að þar sé unaðslega fallegt. Þetta er veiðislóð þar sem margir komast fyrir, veiða má á allt löglegt agn og það má hirða aflann. Í þetta sækja margir og ekki að undra vinsældir Veiðivatna.