Vikurtölurnar eru komnar á Angling.is og eins og við var að búast þá er þetta aðeins farið að gefa eftir. All margar ár stefna þó í mun betri útkomu heldur en í hörmungunum í fyrra. Alls ekki allar þó. Fyrir utan seiðasleppiárnar í Rangárþingi þá eru þó tvær sjálfbærar sem tróna á toppinum, Jökla og Þverá/Kjarrá. Við ætlum aðeins að ræða Jöklu núna, hinar líklega næstu daga.
Við heyrði í Þresti leigutaka í dag og hann syngur frekar eins og svartþröstur þessa daganna frekar en skógarþröstur, svo þýður er hann og glaður, enda allt gengið í haginn þegar á heildina er litið. Þrátt fyrir flóðrigningar í byrjun vertíðar og svo hitabylgju sem hækkaði og litaði vatnið upp úr öllu valdi í framhaldinu, þá er áin komin í metveiði. Og fullt enn þá eftir.
Vikan gaf 129 laxa sem er minna en að undanförnu. Það skýrist af tvennu….fyrst var holl sem fór varla út í á, kemur annað hvort ár aðallega til að „chilla“, síðan tók við holl skipað veiðiköppum frá 70 til 92 ára og að sögn Þrastar að þrátt fyrir aldurinn væru menn furðu sprækir. Stórum tölurnar væru samt að koma á þessum tíma frá Jöklu 2, efra svæðinu sem er krefjandi og þar voru duglegir menn að veiða. Og þar er fullt af laxi. Með þessum 129 löxum voru komnir 1389 laxar á land, metið gamla var 2024, þá komu 1163 laxar og þá kom yfirfallið seint. Nú kemur það líklega ekki og metið slegið nú þegar um 226 laxa. Metið kolfallið.
„Það eru meiri líkur en minni að við förum yfir 2000 laxa í sumar. Það er nóg eftir, ekkert yfirfall í sjónmáli, mikill fiskur í ánni og þó að hægst hafi á göngunum þá er enn fiskur að ganga og hann er um alla á. Síðan er magnað að til þessa dags þá er stórlaxahlutfallið nánast jafnt smálaxahlutfallinu. Eftir þessa erfiðu byrjun okkar þá er þessi staða nánast ekkert annað en mögnuð. Ég var mjög bjartsýnn fyrir sumarið, af ýmsum sökum, og þrátt fyrir hnökra í byrjun, þá hefur allt það góða gengið eftir,“ sagði Þröstur í samtali við VoV.










