Hér vantar því miður bæði mynd og nöfn, en einkar skemmtilega veiðisögu heyrðum við frá Meðalfellsvatni frá síðustu helgi. Kunningi einn horfði á allt saman úr bíl sínum og fannst það fallegt sem hann sá.
Þarna voru hjón með tvö börn, annað þeirra 6-7 ára, hitt bara lítið. Allt snérist um að litli guttinn veiddi og var hann gerður út með kaststöng þar sem vopnið var flotholt og fluga. Peyinn virtist ráða bærilega við að koma dótinu nokkuð út í vatnið. Og þarna, á þessu kortéri sem að kunningi vor fylgdist með, landaði sá stutti þremur urriðum sem voru úr fjarlægð séð kannski pund hver. Miðað við viðbrögð þess stutta hefðu þeir allt eins getað vegið 30 pund hver, slíkur var darraðardansinn eftir hverja lotu!
Önnur skemmtileg saga úr Kjósinni er nokkrum dögum eldri. Sumarbústaðafólk var úti á bát og kastaði spæni. Fiskur tók og enginn smá fiskur. Þetta var ferlíki sem lét aldrei sjá sig, en dró bátinn fram og aftur drjúga stund áður en losnaði úr honum spónninn. Ugglaust stórlax á ferð, en laxinn er fyrir nokkuð löngu genginn í vatnið og þar veiðast alltaf nokkrir á hverri vertíð og krydda þar með tilveru silungsveiðimanna. Þess má geta að Meðalfellsvatn er eitt af vötnum Veiðikortsins.










