Langá opnaði í morgun og það var eiginlega sama sagan og víðast, þó ekki eins og alls staðar samt. Lítil veiði en samt einn lax. Langá er smálaxaá og ef stórlaxinn vantar eitt árið, þá verður opnun árinnar rýr.
En einn kom samt á land, sbr myndin sem við fengum að láni frá SVFR, leigutaka árinnar. Vífill Gústafsson, þriðji ættliðurinn þeirra sem opnuðu ána upp í Langavatn með ótal stigum og sprengdum fiskvegum. Laxinn er tveggja ára fiskur, 79 cm veiddur í Eyrarsundi, sem er ofan foss. Þarna sem víðar er beðið eftir smálaxinum.










