Við ætlum að taka fyrir nokkur vorveiðivötn á næstunni. Allur klaki er að hverfa og vorið sannarlega komið. Eitt af þeim vötnum er Vífilstaðavatnið og engar ýkjur að þangað fara margir til að taka fyrstu köstin og fá úr sér hroppinn. Það geta ekki allir raðað sér í dýru sjóbirtingsveiðina.
Vífilstaðavatn er á vettvangi Veiðikortsins. Það tekur aðeins nokkrar mínútur að aka þangað hvaðan sem er af höfuðborgarsvæðinu, það „vaknar“ oft fyrr en önnur vötn. Og það er fullt af fiski sem er auðvitað mikilvægt. Í vatninu hefur alltaf verið bæði urriði og bleikja, en seinni árin hefur bleikjan gefið eftir eins og víðar. Þó veiddist þar í fyrra 10 punda flykki ef við munum rétt og það á þurrflugu. En urriðinn er nú eiginlega aðalfiskurinn og það gerir vatnið enn meira aðlaðandi sem vorveiðivatn, því um leið og hlýnar gerist urriðinn svangur mjög.
Þetta er frábært vatn til að taka krakkana með, hvort heldur þeir eru að læra tökin með flugustönginni, eða nota bara flotholtið góða. Ef að erfitt er að finna maðk, þá vitum við til þess að Squrmy Wormy „flugan“ hefur leyst maðkinn af með stæl við vissar aðstæður. Muna bara að kippa á móti þegar flotholtið fer undir yfirborðið. Annars sleppir fiskurinn agninu. Ef það væri alvöru ormur gilti öðru máli, þá væri freistandi fyrir fiskinn að taka sjensinn og gleypa. En ef það er flugan, þá eru það aðallega vel þekktar púpur. Óþarfi að þylja upp nöfn, margar koma til greina og allar þekktar. Ritstjóri hefur veitt í vatni þessu frá barnæsku og spónn fór aldrei vel, nema þegar dorgað var niður um vakir við norðurenda vatnsins, þar sem nú er að hluta til friðland þar sem bannað er að veiða hvort eð er. Þá var það bleikja sem gaf sig og við strákarnir að keppa um bleikjuna við mink og gráhegra sem notuðu þessar vakir einnig til veiða. Þar eru kaldavermsl.
Þetta er lítið vatn, en samt nóg pláss. Vesturbakkinn er langur og vinsælastur. Einnig má víða setja í fisk undan aðalbílastæðunum neðan (eða ofan við) Vífilstaði. Botninn og út með norðurendanum er friðland. Mikið fuglalíf þar og ekki síst hinn sjaldgæfi flóðgoði. Honum fækkaði ofboð mikið fyrir nokkrum áratugum en hefur verið að koma til baka…víða, m.a. á Vífilstaðavatni og hafa verið gerðir manngerðir „varphólmar“ í vatninu, því flórgoðinn er eina fuglategund Íslands sem gerir sér flothreiður. Flórgoðinn er með fallegustu fuglum Íslands og þess virði að bregða sér í göngutúr um friðlandið með sjónauka, aðeins til að skoða hann.










