Eins og eftir pöntun, er sjóbleikjan mætt í Fögruhlíðarós. Og ekki bara það, heldur bara fullt af henni. Þröstur Elliðason leigutaki Fögruhlíðarár kallar ána og ósinn mögulega „síðasta vígi“ sjóbleikjunnar á Íslandi.
Umræðan hefur ekki farið hljótt, víðast hvar á landinu er talað um hrun í sjóbleikjustofnum, en í Fögruhlíðarós er ævinlega líflegt, ef menn eru staddir þar þegar rétt stendur á sjávarföllum. Súddi (Sigurður Staples) var fyrir skemmstu og mokveiddi,“ sagði Þröstur í samtali við VoV um helgina.

Það er margt til í þessu hjá Þresti, sama hvar stigið er niður fæti þá er fækkun sjóbleikjunnar augljós. Meira að segja í Fljótaá í Fljótum sem lengi hefur verið ein aðal sjóbleikjuáin finnur fyrir þessu. Vigfús Orrason, umsjónarmaður árinnar segir hrun í hinni eiginlegu sjóbleikju, en bleikjuveiðinni sé haldið uppi af bleikju úr hálfsöltu Miklavatninu. Alls staðar finna menn fyrir þessu.
Nema í Fögruhlíðarós. „Ósinn er alls ekki mikið stndaðður og beinlínis lítið þegar líður á sumarið. Bleikjan fer að veiðast snemma og það fara bara stöku erlendir veiðimenn þarna niður eftir og strjálingur af heimamönnum sem margir þekkja ósinn vel og fiska samkvæmt því. Það er lítið eða ekkert um að menn komi að sunnan til að veiða Fögruhlíðarósinn. Þrátt fyrir afleitt veðurfar í fyrra, endalausa norðanáttina og kuldann, og litla ástundum, minni en oftast, veiddust samt um 200 bleikkjur þarna. Og venjuleg tala er 3-400…og eins og áður sagði er lítið veitt þarna eftir mitt sumarið. Á sama tíma er t.d. hrun í bleikjustofni Kaldár sem rennur í Jöklu þarna skammt frá og er fræg fyrir sínar stóru sjóbleikjur.“
Fögruhlíðarós er veiddur frá báðum bökkum, en þeir eru ólíkir bakkarnir. Að norðan er kortérs gangur frá bílastæði og veitt frá landi. Þar ganga klappir út og það eru álar með landinu þeim megin. Þar veiðist iðulega vel. Skemmtilegasts finnst þó flestum að fara á sandinn að sunnanverðu og hafa Landsendafjöllin úr bakgrunninum. Það kallar á fjórhjóladrifs bíl og hafi menn aðgang að slíku farartæki þá er ferðalagið þess virði. Bara halda sig við slóða, fara ekki út fyrir þá.
En hvað með hömlur? Þröstur er spurður út í það. „Menn eru bara beðnir að hirða hóflega. Bara eitthvað lítið á grillið. Og sleppa öllum fiski yfir 45 sentimetrum.“ Það var og.












