Mikill fjöldi hnúðlaxa í íslenskum ám í sumar hefur ekki farið fram hjá veiðimönnnum og náttúruunnendum. Þeir hafa lengi verið landlægir en nú má tala um sprengingu. Og váin er kannski meiri en margan grunaði.

Fréttablaðið var með samantekt þann 8.9 þar sem kom að komin væru 59 tilvik um veidda hnúðlaxa. Þau hafa verið um land allt og fyrir utan að fleiri hafa bæst við síðan í liðinni viku má fastlega búast við því að tilvikin fram að því voru fleiri. Bæði hirða sumir ekki um að tilkynna þau og svo eins, að hrygna hnúðlaxins er alls ekki óáþekk sjóbleikju í útliti. Eins og fram kom í byrjun þessa pistils þá hafa hnúðlaxar lengi verið landlægir hér á landi og flest hin seinni ár hafa nokkri veiðst. Þetta eru að upplagi Kyrrahafskaxar, en Rússar reyndu að koma þeim í ár í Hvítahafi til að auka gæði þeirra og fæðusköpun fyrir íbúa, á þeirri forsendu að þeir hrygndu neðarlega í kerfum og seiðin gengu til sjávar strax að klaki loknu að vori. Þau myndu því ekki keppa við heimalaxinn um fæðu og búsvæði.

Bleiklax, hnúðlax, Kristján Páll Rafnsson
Kristján Páll Rafnsson með bleiklaxahrygnu sem hann fékk fyrir austan fyrir skemmstu og auðséð hvers vegna hægt er að ruglast á henni og sjóbleikju

En hvað þýðir þetta í raun; „neðarlega í kerfum“? Snævarr Örn Georgsson, veiðileiðsögumaður í Austfirskum laxveiðiám kynnti sér eitt og annað um hnúðlaxa í spjalli við VoV og sagði: „Það stendur að flestir hnúðlaxar fari ekki ofar í ár heldur en 40 mílur á heimaslóðunum í Alaska. Það eru 64 kílómetrar. Á stærri vatnasvæðum væru hins vegar dæmi um að þeir færu lengra. Eru nefnd svæði eins og Yukon, Kuskukvim og Nushagak. Lengstu nefndu tölurnar eru t.d. Susitna með 210 kílómetra og Mulchatna með heila 400 kílómetra. Þannig að í stórum ám á Íslandi eisn og Ölfusá/Hvítá geta þeir, og eiga til, að fara töluvert langt frá sjó. 40 mílur eru 64 kílómetrar og það eru nú ekkert margar laxveiðiár á Íslandi fiskgengar lengra en það, þannig að þeir geta nokkurn vegin  hrygnt hvar sem er á Íslandi þar sem er fiskgengt.“

Eins og VoV greindi frá fyrr í sumar, hafa engar athuganir verið gerðar á því hvort að hnúðlaxar hafi hrygnt í íslenskum ám. Ekki hafi til þessa þótt ástæða til, en það gæti breyst ef fram héldi sem horfði. Þeir hafa hrygnt í nágrannalöndum okkar, eins og t.d. í Noregi.