Laxavertíðin fer vel af stað, en hvað svo…..

Hjónin á Urriðafossi með einn flottan...myndin er fengin af FB síðu IO Veiðileyfa.

Þó að fyrsti lax sumarsins hafi veiðst í Skugga fyrir fáeinum dögum, þá er hin „formlega“ opnun laxavertíðarinnar 1.júní. Einu sinni var það Norðurá með miklum fjölmiðlasirkus. Nú er það liðin tíð, Urriðafoss er startið. Þar komu fimm á land á fyrstu vakt og útlitiið þannig séð nokkuð gott þó að opnanir eigi það til að gefa misvísandi væntingar.

En sem sagt, fimm á land. Það er ekki slæmt og allt stórir og flottir fiskar. Allt „tveggja ára“ lax eins og það heitir, allt að 83 cm.Og einn hængur í það minnsta, en einu sinni þóttu það stórtíðindi ef að hængar veiddust snemma á vertíð. Þá þótti það vita á frábæra vertíð. Í dag er ekkert að marka það lengur.

Og nú spyrja menn sig eðlilega, eins og ævinlega, hvað gerist næst? Hvernig verður sumarið? Verður lax, verður vatn? Fregnir herma að laxveiðimenn séu orðnir frekar kvekktir þrátt fyrir batann í fyrra. Víða séu gloppur í stærri ánum, en hinar minni betur seldar. Hvað vitum við, þetta segir orðrómurinn. En alltjent lítur þetta allt vel út og laxinn að sjást nánast út um allt. Langt á undan áætlun. En hvað þýðir það um framhaldið.

En hlaupum aðeins yfir það. Höskuldur Birkir Erlingsson lögga á Blöndósi og stórveiðimaður, sá nýrenninga í dag, bæði í Blöndu og Laxá á Ásum. Laxar eeru farnir að skrá sig í teljaranum í Skuggafossi í Langá, kominn í Kjósina, Norðurá, Vatnsdalsá og eflaust miklu víðar. Og það sem flestar þessara fregna eiga sammerkt er að í mörgum tilvikum eru laxarnir komnir langt upp í kerfin. Pokafoss í Kjós, Berghylsbrot í Norðurá, Stekkjarfoss í Vatnsdalsá osfrv… Vonum bara það besta.

En það eru tíðindi sem eru á skjön við þetta venjulega og hafa allt að gera með ótrúlegt vor. Blanda er komin á yfirfall. Ekki vitum við hvort að Jökla sé það líka, en ef ekki þá styttist í það. Þetta eru meldingar sem eiga sér ævinlega stað um eða eftir mitt sumar og setja allt á hliðina í veiðiskapnum. Nú er von til þess að yfirfall verði lokið áður en vertíð hefst. Og það væri magnað. Tökum Jöklu sem dæmi, hún hefur hótað metveiði síðustu ár, en yfirfall jafnan skemmt það. Í fyrra kom það mjög seint og metið kolféll. Hvað gerist nú?