Aðal málið að vera þurrrrr – kostað

Vöðlur eru hluti af vopnabúri veiðimanna, hvort heldur er í stanga- eða skotveiði. Ingólfur Kolbeinsson hjá Vesturröst er sérfræðingur í vöðlum, en verslun hans sérhæfir sig í vöðlum frá Orvis.

Ingólfur segir: „Ég hef mikla reynslu um allt varðandi vöðlur, er búinn að nota vöðlur í 40 ár , gera við vöðlur í 31 ár og selja vöðlur í 32 ár. Sem betur fer hafa vöðlur þróast, og þá í rétta átt. Nú eru  þær þægilegri, léttari og öndun í efninu en mjög mismikil eftir gæðum. Öndunarvöðlur svokallaðar komu hér fyrst frá ítalíu. Ítalir voru einna fyrstir til að gera góðar öndunarvöðlur  eins og mörgu góðu varðandi fatnað . Nú, síðan fór framleiðsla á svona vöðlum til austurlanda eins of flest  og þá fóru að koma fleiri gerðir og gallar voru algengir, sérlega á sokkum. En smátt og smátt fóru að koma betri vöðlur þá frá betri merkjunum í veiðiheiminum.“

Og hann heldur áfram: „Vöðlur koma til viðgerðar nú aðallega vegna þess að þær leka og þá eru helstu svæði  á innanverðum leggjum og það kemur vegna núnings  sem sagt lappir nuddast saman við göngu, en mjög mismikið og fer það eftir göngulagi hvers og eins.  Ef þú ferð uppá heiði og gengur  10-20 km, sem er mjög algengt  þó fólk átti sig ekki á því og oft eftir kindastígum sem eru þröngir og lappir nuddast þá meira saman. Oft er hægt að greina notaðar vöðlur á þvi hvernig fólk veiðir og á hvað oft á tíðum

Sokkar á öndunarvöðlum sem eru úr neoprene efni duga yfirleitt betur í dag en fyrir um 10 árum og sjaldan að þeir leki  en endingartími á neoprene er einhver ár þá fer það að þjappast og harðna og saumar leka  þá eru vöðlurnar búnar, því það borgar sig ekki að skipta um sokka á vöðlum . Annar algengur leki eru smágöt eftir öngul og auðvelt er að gera við það. Það viðgerðarefni sem notað er á vöðlur er nánast undantekningarlaust Aquasure, það er glært, losnar ekki af og má setja á blautan flöt. Og það harðnar ekki.

Á betri vöðlum í dag eru 4 til 5 lög af efni og farið að nota sterka dúk í ytrabirgði td Cordura sem er einn sterkasti dúkur sem til er. En þegar upp er staðið og út er vaðið er aðal málið að vera þurrrrrrrrrrrr að öllu leiti.“