Vatnsá og fleiri komanr í gang….

Erlendur veiðimaður með boltafisk úr Vatnsá á dögunum.

Litlu minni þekktu og umtöluðu svæðin hafa tekið við sér líkt og frægu nöfnin. Nefna má Vatnsá, Skógá, Þverá og Fossá. Vel mætti einnig tína til Sandá sem fellur í Þjórsá líkt og Fossá og einnig Skógá.

Tölum fyrst um Vatnsá, ásamt Heiðavatni. Ásgeir Arnar umsjónarmaður segir að óveðurslægðin á dögunum hafi skipt sköpum. Sjóbirtingur var að troða sér upp í vatnsleysinu, en um leið og hækkaði í ánni færði laxinn sig upp úr Kerlingardalsá og upp í Vatnsá. „Menn hafa verið að fá upp í 6-7 laxa á dag og missa annað eins. Mest af þessu er stórlax. Sjóbirtingurinn er sterkur líka, en hann fór að mestu beint upp í vatn og á meðan að áin var svona vatnslítil, þá fór Gulli umsjónarmaður með marga upp í vatn til að bjarga túrnum með flottum árangri, enda þekkir hann vatnið út og inn. Birtingurinn er oft stærri heldur en laxinn, alla vega á pari við tveggja ára laxana,“ sagði Ásgeir í samtali við VoV.

10 pundari úr Þverá. Myndin er fengin hjá Kolskeggi.

Ásgeir er einnig með Skógá á sínum snærum. „Skógá hefur verið erfið í sumar en er að koma til núna á haustdögum. Ekki að það vanti laxinn. Þurrkarnir komu í veg fyrir að laxinn kæmi upp úr ósnum, hann var of grunnur þrátt fyrir að við reyndum að moka úr. Auk þess var mikil bráð í ánni þó að vatnslítil væri og hún var brún á litinn. Svo rigndi loksins um daginn og þá batnaði ástandið strax og menn fóru að setja í laxa,“ bætti Ásgeir við.

Af öðrum minna þekktum svæðum þá getum við vottað að Þjórsársvæðin Fossá og Sandá hafa verið að gefa, Fossá fyrir all nokkru, en Sandá nýverið enda mun vatnsminni heldur en Fossá og dragá þar að auki. En þar búa stórlaxar eins og í Fossá og þeirra tími er kominn.

Kolskeggur er með Þverá í Fljótshlíð á sínum snærðum. Þar var dauft lengi vel, enda kæfa langir þurrkar ána, en nú hefur hún tekið við sér. Þeir sem voru um helgina sögðu svona frá: „Vorum í Þerá um helgina og fórum sáttir heim 8 laxar frá 4 til 10 pund fengust 2 í 39, 1 í 41, 1 í 48, 1 í 49 og 3 í 50, svo fengum við 9 sjóbirtinga flesta í 21 og urðum varir við fiska í 20 og 19, 2 komu í 48 frá 2 til 6 pund semsagt 17 fiskar í það heila“. Þarna er líka hægt að bóka sér lítið ævintýri svona í vertíðarlok.