Er drottningin að vakna eftir þyrnirósarblundinn?

Jón Helgi með fallegan lax úr Laxá, ný mynd fengin af FB síðu hans.

Allir vita að Drottningin í norði, Laxá í Aðaldal, hefur verið í háskalegri niðursveiflu síðustu sumur og náði jah, líklega sögulegu lágmarki í fyrra þegar aðeins veiddust 402 laxar í á sem fór stundum yfir 2000 þegar best lét. Eitt og annað hefur verið gert til að græða sárin og þó að heildarmyndin á laxveiðinni í sumar sé ekki beysin, þá má sjá batamerki á Laxá.

Eiður Pétursson að sleppa einum
Ekki svo að skilja að veiðitölur hennar séu til að hrópa húrra fyrir svona þegar samanburðartölur eru skoðaðar, en vissulega í lagi að brosa út í annað þegar horft er skemur fram á veginn. Þann 2.8 s.l. sagði vefsíðan angling.is frá því að búið væri að skrá 282 laxa, sem er minna en tárum taki. En….hundrað löxum ca meira en á sama tíma í fyrra að sögn Jóns Helga á Laxamýri. Og slatti eftir af vertíðinni…og síðustu dagar hafa verið nokkuð góðir, aðeins að minna á gamla góða tíma.
Fyrstu vísbendingarnar fengust þegar maður að nafni Nils Folmer landaði á annan tug laxa á einum degi í ánni, fáheyrt hin síðari ár. Það eru ca 10 dagar síðan og hann sagði eitthvað á þá leið að það væri fiskur að ganga, bæði smár og stór og hann sæi ekki betur en að Laxá væri að sýna batamerki frá hinni ömurlegu niðursveiflu síðustu ára. Nils hefur veitt í ánni í áraraðir.
Og svo þetta: Eiður Pétursson, leiðsögumaður í Laxá og manna kunnastur ánni segir svo frá för sinni í ána nú í vikulok:  „Við feðgar vorum við veiðar í Laxá. Drottning íslenskra fallvatna er á eldi þessa dagana,, við feðgar lönduðum 15 löxum og settum í annað eins sem ekki náðist að landa.. Fyrir okkur sem erum andsetnir af Laxá þá eru þetta mjög góð tíðindi eftir mörg mögur ár. Fiskur dreifður um alla á og mikið meira af fiski í ánni en sést hefur lengi. Við veiddum með frændum mínum sem allir eru ættaðir úr Grafarbakka á Húsavík,, margir miklir veiðimenn og með rótgróna veiðidellu í blóðinu, sögurnar og heilu leikritin voru sett á svið við matarborðið og náði það hápunkti þegar góður frændi spilaði og söng hærra minn Guð til þín og spilaði undir á „luft“ orgel. Hollið endaði í 39 löxum á 6 stangir og voru það þreyttir og sællegir frændur sem héldu heim að lokinni veiðiferð fullir tilhlökkunar að mæta aftur í drottninguna næsta sumar.“
Og Jón Helgi Björnsson á Laxamýri tók undir þetta með sinni reynslu af veiðiskap í ánni síðustu daga:  „Sumarfríið endar á veiði í Laxá með Sigurjóni. Fengum tvo laxa í Heiðarenda og Kiðeyjarbroti og 7 sjóbirtinga. Mikið af fiski að sýna sig. Laxá að sýna batamerki. Enda komnir 100 fleiri laxar en í fyrra. Héldum veiðum áfram daginn eftir. Æðarfossarnir í morgun. Tveir smálaxar á land og tveir stórir sjóbirtingar. Einn hnúðlax andaðist snarlega. Þá var farið á Hólmavað og Haga. Tveir smálaxar komu á Suðurhólma. Þar hef ég ekki fengið fisk síðan ég var að leiðsegja Jack Nicklaus golflegend fyrir mjög mörgum árum. Ofsalega skemmtilegur dagur.“
Ergo, drottingin kannski og vonandi að vakna af sínum þyrnirósarsvefni?