Fyrsti dagurinn bar keim af árstíðinni

Einn glæsilegur úr Laugardælum, myndina útvegaði Kolla í Veiðibúð Suðurlands á Selfossi.

Ballið byrjaði í dag, (í gær, komið fram yfir miðnætti). Þrátt fyrir risjótta tíð að undanförnu þykir mörgum vorið byrjað með vertíð 1.apríl. Enda skammdegið á bak og burt og slatti af farfuglum mættir. Aðstæður geta þó verið með þeim hætti að opnanir eru hálfgerður 1.apríl. Til eru frægar sögur þar um og það var bæði kalsamt og erfitt sums staðar.

Það fer yfirleitt minnst fyrir bleikjunni í þessu vorskaki, þrátt fyrir að hún sé þessi heimskautatípa þá gefur hún sér meiri tíma þegar kemur að aðstæðum og hitastigi. Sjóbirtingur og staðbundinn urriði eru hins vegar mættir að matarborðinu og vilja sjá matseðilinn. Því miður slæðast sums staðar hoplaxar á agnið og ber að fara sérstökum silkihönskum um þá.

Ægissíðufoss í Ytri Rangá. Þarna er greinilega hægt að veiða og við fáum eflaust fréttir þaðan fljótlega…myndin er fengin frá IO Veiðileyfum…

Það eru fjölmargir staðir sem opna og eflaust uppselt í þá suma þessa fyrstu daga og svo tekur paskahelgin við með sínum ótal frídögum í boði kirkjunnar. Við getum nefnt hér nokkra staði og eru eflaust fleiri. Veida.is er t.d. með Brúará bæði fyrir Spóastaði og Skálholt, einnig Hvítá frá Skálholti. Hólaá við Útey, Hraun, Galtalæk og Torfastaði í Sogi sem er þó fyrst og fremst bleikjusvæði. IO Veiðileyfi eru með Leirá, Andaalæk og Fullsæl, Hólaá við Laugardalshóla, Tjarnartjörn (hvar sem hún nú er) og Ytri Rangá, bæði ofan Árbæjarfoss og neðan við Ægissíðufoss. Fish Partner eru með Geirlandsá, Fossála og Vatnamót, Hreggnasi með Tungufljót og aðrir með Tungulæk. Svo er auðvitað Minnivallalækurinn hans Þrastar, Litlaá og Húseyjarkvísl fyrir norðan og svo má tína til Veiðikortið, þar eru vötn sem opna fyrsta apríl, önnur „þegar ísa leysir“ og enn önnur þar sem má hreinlega veiða allt árið. Vel athugandi að skoða vefsíðu Veiðikortsins.

En að fyrsta deginum. Eins og búast mátti við voru aðstæður erfiðar eftir þennan einkar skemmtilega marsmánuð. Veðrið að vísu að mestu til friðs í dag , blés þó hressilega víða með tilheyrandi vindkælingu, en eftir alvöru vetur í mars var víða klaki yfir öllu og sums staðar veiðifólk og leigutakar að reyna að hamra þetta allt burt með hökum, sleggjum og öðrum tilfallandi græjum. Í gegn um árin hafa svoleiðis aðfarir skilað árangri, t.d. í Geirlandsá og Leirá.

En veiðifréttir hafa ekki verið á takteinum. Tungulækur er þó alltaf líklegur og þar var fín veiði, fréttum við. Nokkrir tugir fiska sem kemur ekki á óvart…lindarvatn sem þarf hörkufrost til að spillast. Þá sagði Kolla í Veiðibúð Suðurlands okkur að nokkrir fínir fiskar hefðu veiðst á svæði Laugardæla. Hún er með leyfin undir pilsfaldinum og er laust á næstu dögum. Laugardælir komu fyrst  inn sem vorveiðisvæði í fyrra og kom feiknavel út. Vert að skoða það. Kolla sagði okkur: Eigandi fór í tvo tíma að veiða í dag og setti í þrjá á Ketilbroti við gólfvöllinn. Notaði Flæðarmús og Dentist.“

Ólívu draugarnir hans Nils Folmers

En við ætlum að gamni að nefna nokkrar flugur sem virka vel í birtinginn sem og þann staðbunda. Byrjum á uppáhaldi Nils Folmers, sem er hönnuður Olive Ghost, sem sækir áhrif til hinna þekktu Ghost flugna Black og Grey Ghost. Hér er mynd af henni og smá komment frá Nilla: „Silungsveiðitímabilið er rétt handan við hornið og nokkrir hafa spurt mig: Ef ég mætti bara taka eina flugu með í byrjun tímabils – hvaða fluga yrði fyrir valinu? – Einfalt. Olive Ghost. Ég hannaði þessa flugu upphaflega fyrir Þingvallavatn, en tímabil eftir tímabil hefur hún sannað sig sem ein af bestu veiðiflugunum um allt land.“

Tvö Black Ghost afbrigði, Green Dumm á kantinum og þessi svakalega í miðjunni.sjóbirtingaskelfir í fyrra haust.

Svo kom hér þrjár sem að Jón Ingi í Vesturröst lét okkur hafa í október í fyrra. Leiðin lá þá í Heiðardal, Vatnsá og Heiðarvatn. Í brjáluðu slagveðri virkuðu þessar einkar vel og engin ástæða til að ætla að þær virki ekki vel á urriðann að vori. Tvær í lófanum eru glimmer og gúmmílappa afbrigði af svarta draugnum. Þessi á kantinum er kanski fulltrúi pupnanna sem virka líka vel. Þetta er Green Dumm, hnýtt af Reiðu Öndinni og hefur verið óhemju öflug vor og haust. Þessi litríka í miðjunni er hins vegar eitthvað annað.Löng, glimmeruð…hún gaf tvo 83 cm birtinga í Vatnsá s.l. haust og fleiri smærri í vatninu. Jón Ingi vissi ekki nafn á henni, en ég kalla hana Jingi.

Gömul og góð, svarta útgáfan af Flæðarmúsinni….

Og síðasta myndin, þetta er nú bara gamalkunn fluga, en hefur gefið ritstjóra svakalega vel vor, haust og sumar líka. Svarta afbrigðið af Flæðarmúsinnii.

En þess utan höfum við lítið frétt og reynt þó að heyra í fólki. Hvetjum við þá sem hafa sett í fisk, að senda okkur myndir og línur í ritstjorn-att-votnogveidi.is eða á messenger á nafn ritstjóra Guðmundur Guðjónsson.

Það er alveg tilfellið að krakkarnir fari með í veiðina, vorveiðin er ekki bara sport fyrir harðsvíraða sérvitringa hringlandi í merkjavöru. Það eru vötn opin. Bara gott að hafa bílinn nærri en að börnin eru með. En í allri þessari pælingu hefur okkur dottið í hug að deila smá reynslu. Hvaða flugur gefa á vorin. Margir hlægja bara og hugsa, jájá, þetta er ég nú alveg með á hreinu. En sjáum til.