Vov hefur ekki velt laxveiðinni allt of mikið fyrir sig síðustu misseri. Tölurnar verið út um allt og yfirlett á sömu nótum og fyrr. Síðast komu þær þann 6.8 á angling.is. Og þar mátti reyndar sjá smávegis breytingar.
Eins og t.d. að vikutölur í Þverá/Kjarrá hafa verið nokkuð góðar að undanförnu og ef við drögum saman vikutölurnar frá 9.7 til 6.ágúst þá hafa veiðst 905 laxar á því tímabili. Áin komin í 1116 laxa, en lokatalan í fyrra var 2239. Það er kannski langsótt að talan jafni 2004-töluna, en með þokkalegum gangi þá gæti talan farið nærri.
Norðausturhornið hefur skarað fram úr, en einhverra hluta vegna kom bakslag í Selá í vikunni sem lauk 6.7 og Jökla fór í millitíðinni á yfirfall. Samt spjaraði Jökla sig betur með 129 laxa viku og heildarveiði 806. En þar er yfirfall og hvernær það gengur yfir ræður framhaldinu. Metið í fyrra var 1163. Alls ekki úti í hött að það falli þrátt fyrir mótlætið núna.
En Selá? Vikuveiðin datt niður í 52 laxa sem er alls ekki gott, en kann að hafa sínar ástæður.Kannski auðugir útlendingar sem fara seint út og hætta snemma. En þrátt fyrir heildartöluna sína, þessa heimfrægu tölu 666, þá er aðeins örfáum löxum á pari við sömu tölu og í fyrra (687).
Síðan má nefna þessa furðufiska Vesturlands, Haffjarðará og Hítará. Haffjarðará skilaði 71 laxi yfir vikuna og var í 552 á móti 566 í fyrra. Telst varla marktækt. Og hvað Hítará varðar….52 laxa vika skilaði 265 löxum…á sama tíma í fyrra 265 stk…sem sagt flott týra í myrkrinu í landshlutanum. Því við gætum bætt við Norðurá að þótt vikan skilaði 146 löxumn þá var áin þar með aðeins komin í 708 laxa. Göngutími Norðurár liðinn og áin um 1000 löxum neðar en í fyrra (1703)
Svo eru hérna smá in memoriam um gömlu góðu fallegu Gljúfurá. 6.8 var búið að bóka 25 laxa úr henni og drepa flesta. RIP.
Á sama tíma og Norðausturhornið dalar eitthvað, Vesturlandsperlurnar tvær halda velli og aðrar eru í bullinu….þá eru tíðindi af góðum göngum í Rangárþingi. Á bilinu 23.7 til 6.8 veiddust 1233 laxar í Ytri Rangá og voru þá komnir 1634 laxar á land, samanborið við 1674 stk á sama tíma í fyrra. Sem sagt á pari. Í fyrra veiddust alls 4601, en seiinni hálfleikur sker úr um framhaldið. Verður þó að segja að göngur hafa verið sterkar að undanförnu.Og Eystri er í alveg hreint góðum málum. Hún er ekki oft á undan Ytri, en tikkar oft ok í humátt. Staðan á henni núna er að vikurnar 23.7 til 6.8 gáfu 721 lax. Gangur er góður. EN „hafbeitardeildin“ á einnig sína Gljúfurá….þann 6.8 voru skráðir 8 laxar úr Affallinu.










