Það er mikið talað um lélega laxveiði í sumar og að aðeins nokkrar ár á Norðausturlandi ásamt Haffjarðará séu á pari við góðar tölur frá í fyrra. Ein flaug undir radarinn í umfjöllun okkar og er ljúft og skylt að laga það.
Sem sagt, Hítará. Skammt undan er Haffjarðaráin og merkilegt að þær tvær standi sig betur í ár en í fyrra á meðan allt litrófið á vestanverðu, sunnanverðu og norðvestanverðu landinu skora illa. Og margar ár beinlínis mjög illa. En Hítará faldi sig fyrir okkur þegar við fórum yfir tölur. 22.7 höfðu veiðst í henni 147 laxar, en 24.7 í fyrra voru þeir 119. Þetta er nú alveg umtalsvert á þessum síðustu og verstu tímum. Í spjalli sem VoV átti við Gísla Ásgeirsson umsjónarmann Six Rivers Iceland á dögunum, þar sem hann var spurður út í hvers vegna sumar ár væru að standa sig og sumar ekki, talaði hann um að menn ættu ef til vill að taka sig til og draga línu á milli áa sem hafa annars vegar verið tekið á með silkihönskum og öðrum sem að hefðu verið kreistar eins og sítrónur. Hítará gæti vel fallið í fyrri flokkinn.










