
Laxatölurnar skiluðu sér á venjulegum tíma á angling.is. Þar, sem og á AnglingIQ, má sjá það sem allir vita, að laxveiðin er næstum hörmung. Og júlí nánast á enda. Það er kominn þokkalegur listi yfir ár sem hafa náð töfratölunni 100, en athygli vekur að fjölmargar þekktar ár eru ekki þar að finna. Og það segir jafn mikið um slakt sumar og hversu slakar tölur þriggja stafa árnar eru.
Við ætlum því að einbeita okkur að þeim lista, „óæðri endanum“, sem engin á eða forráðamenn þeirra vilja vera á. Ef að vinnum okkur niður, þá er Hafralónsá nærri því að komast í „elítuklúbbinn“ með 97 laxa. Brennan sömuleiðis með 93. En það er lengra í þær næstu og vantar þó ekki frægðina á þeim bæjum. Næst má nefna Strauma með 76, Vatnsdalsá 76, Flókadalsá 74, Laxá í Dölum 74, Straumfjarðará 74, Leirvogsá 72, Víðidalsá 65, Haukadalsá 57, Sandá 56 og Blanda 43. Úlfará 30, Hrútan 22, Flekkan 19, Laugardalsá 18 og Mýrarkvísl 18. Og……Gljúfurá í Borgarfirði með 4?!?! Og enn og aftur, júlí nánast búinn.
Haffjarðará sker sig úr. Ef að hún hefði tilfinningar finndist henni eflaust eins og hún væri ein í heiminum,innan um öll hin frægu nöfnin. En svo er það Norðausturhornið. Jökla, Selá, Hofsá, Miðfjarðará allar á góðum stað. Fiskur hefur vissulega verið að ganga víða að undanförnu og má nefna Ytri Rangá, Elliðaárnar, Langá og Laxá í Kjós. Eflaust fleiri, en þó að veiði hressist það sem eftir lifir vertíðinni, er ljóst að þessi, sumarið 2025, mun ekki lifa í minningunni sem frábært sumar. Langt því frá. Hins vegar er það þannig, að jafnvel í slökum sumrum verða til veiðisögur og minningar skapast. Það breytist aldrei.








