
Æði margar laxveiðiár hafa opnað síðustu daga og sumar hafa verið opnar lungann úr júní. Það er allur gangur á ganginum og ýmsir farnir að verða uggandi, enda sums staðar einfaldlega fremur dauft. Horfur virðast þó vera góðar á Norðausturhorninu.
Það hefur verið fremur óopinber opnun í ám Six Rivers á Norðausturhorninu, eigandi Six Rivers Sir Jim Ratcliffe, fjölskylda hans og vinir hafa rúllað á milli áa síðustu daga, en senn mæta fyrstu „söluhollin“ á vettvang. „Við erum ánægð með ástandið og gang mála þessa daganna. Það hafa veiðst laxar í öllum ánum og verið beinlínis líflegt í Selá. Hefur þó verið lítið stundað. Þar er mikið líf neðan við fossinn og um 50 laxar farnir um teljarann sem er fáheyrt svo snemma sumars. Tveir mjög stórir eru þar á meðal, annar þeirra gæti vel verið 100 cm eða meira. Neðar eru einnig laxar að ganga og veiddist t.d. nýverið lax í Narra,“ sagði Gísli Ásgeirsson framkvæmdastjóri Six Rivers í samtali við VoV. Hann lét þess og getið að fyrstu laxarnir úr Hafralónsá hefðu veiðst í fossinum Gústa og Stapa sem er næsti hylur þar fyrir neðan. Dæmigerðir vorveiðistaðir. Í Hofsá var ísinn brotinn í Netahyl, en Hofsáin er illskyggnanleg og meiri leit að fyrstu löxunum.

Svo að hinu, 4 á fyrstu vakt í Vatnsdalsá, 9 fyrsta daginn úr Eystri Rangá og 4 af fyrstu vakt í Laxá í Aðaldal. Þrír á fyrstu vakt í Langá og þar voru menn frekar spældir að ykki yrði aflinn meiri enda verið nokkur traffík í teljaranum í Skuggafossi. Í Elliðaánum bættist svo einn við eftir borgarstjóralaxinn, báðir teknir í Hundasteinum sem er ofan við Árbæjarstíflu.

Þá má nefna að Hrútan var opnuð og mikið einvalalið þar á ferð, Árni Baldursson ásamt fjölskyldu og vinum. Árni hafði talað fyrirfram um vondeyfð þar sem áin er orðin afar vatnslítil. Það gekk eftir, en þess í stað fór hópurinn í neðstu veiðistaðina og reyndi við sjóbleikjuna sem Hrútan er fræg fyrir. Og hún klikkaði ekki, nokkrar stórar náðust á land og þeir sem til þekkja vita að slík veiði gefur laxveiði lítið eftir. Annars vorum við að læra dálítið um Hrútuna og fá lesendur okkar að njóta þess með okkur innan skammrar tíðar.
En byrjunin á laxavertíðinni er fremur torráðin. Það voraði snemma og einstaklega fallega. Menn bjuggust við að stórlaxar kæmu snemma og yrði liðmargir eftir gott smálaxasumar í fyrra. Vissulega komu þeir snemma, en ekki eins liðmargir og vonast var eftir. Verði ekki breyting þar á, þá hvílir það enn þyngra á eins vetrar laxinum að skila sér í stórum stíl. Ef báðir árgangar „klikka“ þá lítur vertíðin ekki vel út. Þetta er ekki hugsað sem bölmóður og svartsýni. Enn á eftir að koma í ljós hversu líflegur eins vetrar laxinn verður þegar líður aðeins lengra inn í sumar og það er heldur ekki bitið úr nálinni með fjölda stórlaxa. Þannig að við sjáum til. Þetta hefði mátt byrja betur, en samt engin ástæða til svartsýni enn sem komið er.









