Laxveiðin góð hér, ekki góð þar

Einn af níu í Ytri Rangá í morgun...myndin er frá IO Veiðileyfum

Byrjunin á laxveiðinni heldur áfram að vera brokkgeng, góð hér, ekki góð þar. Ytri Rangá byrjaði vel með níu á fyrstu vakt, á sama tíma var harðlífi framan af í Elliðaánum þrátt fyrir stórkostlega fjörugt videoskot SVFR úr teljara árinnar þar sem hver boltafiskurinn af öðrum stakk sér í gegn, bæði laxar og birtingar.

Heiða Björg borgarstjóri opnaði árnar eftir að hafa sagt nokkur orð um hversu magnað það væri að laxveiðiperla væri varðveitt innan borgarmarka. En: Var ekki komin hefð á að „Reykvíkingur ársins“ opnaði árnar, nokkuð sem Jón Gnarr fann upp á í borgarstjóratíð sinni? Það batterí var hið besta, en nú eru greinilega pólitíkusarnir teknir aftur við. En þrátt fyrir brokkgenga byrjun náði Heiða Björg að landa 60 cm laxi í Hundasteinum áður en yfir lauk.

Síðan þetta hjá okkur í síðustu frétt að árnar á vegum Six Rivers væru að opna allar saman í dag. Bæði satt, en ónákvæmt. Formlegar opnanir eru innan fárra daga, en eigandi og gestir hans dunda sér þessa daganna og fara sér í engu óðslega. Þannig að ekki verður að marka tölur þaðan fyrst um sinn. Þó vitum við að eitthvað voru menn að setja í laxa á Fossbreiðunni í Selá, enda hefur sést talsvert af laxi þar að undanförnu.

Laxar hafa veiðst í Grímsá og Laxá í Kjós, sem og Laxá í Leirársveit, en allar áttu það sammerkt að hafa núllað í byrjun.