Smoltuð niðurgönguseiði langt á undan áætlun

Í framhaldi af forspá Guðna Guðbergssonar um góða laxveiði á komandi sumri, hefur VoV rætt við ýmsa umsjónarmenn lykilsvæða er kemur að laxveiðinni. Þeir eru yfirleitt sammála um eitt, en hikandi við annað, en þeir hafa sagt okkur frá mögnuðum viðburði sem hefur eflaust með óvenjulegt árferðið að gera.

Guðni spáði góðum stórlaxagöngum framan af sumri til samræmis við góðar heimtur á smálaxi í fyrra, sami árgangurinn og allt það. Þeir Sturla Birgisson leigutaki og umsjónarmaður Laxár á Ásum og Gísli Ásgeirsson sem heldur um alla spotta og tauma í Vopnafjarðaránum, difu árinni þó varlegar í vatnið. Yfirsýn þeirra nær til Norður-Norðaustur og Austurlands. Þeir eru báðir bjartsýnir á góðar göngur tveggja ára laxa. Smálaxinn er „stóra spurningin“ eins og Sturla orðaði það, „óvissa“ eins og Gísli orðaði það. Um stórlaxinn, „eins og flestir, bjartsýnn“, sagði Sturla, „reikna með afbragðs stórlaxasumri“, sagði Gísli.

Gísli Ásgeirsson ásamt hluta af fjölskyldu sinni með flottan lax úr Hofsá. Myndin er fengin af FB síðu Gísla.

En báðir komu inn á dálitla furðu í náttúrunni. Byrjum á Gísla: „Ég þarf engum að segja að þetta hefur afar óvenjulegt vor. Snjórinn er búinn og það er bara gott fyrir okkur hér í Vopnafirðinum, áin hlýnar því fyrr og það verður engin snjóbráð meir nema að geri einhver fáránleg hret eins og í júní í fyrra. En þessi miklu hlýindi hafa sett mark sitt á lífríkið í ánni. Það voru hér vísindamenn frá Hafró fyrir helgi og þeir komu í skottið á fyrstu útgöngu gönguseiða. Smoltuð um miðjan mai! Menn muna varla eftir öðru eins. Við búumst við fleiri seiðagusum næst þegar hlýnar aftur að ráði. En þessi hlýindi, alveg fáheyrð. Ég get nefnt sem dæmi að þann 18.mai mældum við Vesturdalsána 18 gráður.“

Sturla Birgisson t.h. ásamt Birni K. Rúnarssyni, en saman leigja þeir Laxá á Ásum og Vatnsdalsá. Myndina fengum við af FB síðu Sturlu.

Sturla hafði ekki ósvipaða sögu að segja: „Við höfum verið við seiðamælingar að undanförnu og í síðustu viku fundum við fullsmoltuð seiði. Um miðjan mai! Í fyrra var afar óhagstætt sumar og seiðin gengu ekki út fyrr en um 10.júlí. Þá var vatnið svo mikið og kalt framan af að lax safnaðist í torfur neðan við Dulsana og gekk ekki upp fyrr sen sjatnaði og hlýnaði aðeins. Hjá okkur er algengast að gönguseiðin fari út í kring um 20 til 24.júní. Seiðin þurfa 10 til 12 gráðu hita í nokkra daga til að loka þessum þroska og koma sér út í sjó. Það er auðvitað breytilegt hvenær þau fá þessi skilyrði, en þau fengu þau klárlega óvenjulega snemma að þessu sinni, óvenjulega seint í fyrra. Hvað gerist síðan með þau verður að koma í ljós. Fyrirfram veit enginn hvernig þeim reiðir af í hafinun.“