Margt hnýtur maður um við skoðun á gestabókum og gömlum veiðibókum í veiðihúsum. VoV er enn í vísiteringu í Reykjadalsá í Reykjadal. Búið að missa einn lax og reisa annan og landa nokkrum fínum urriðum, en í kvöld fundum við magnaða veiðisögu í veiðibók árinnar frá 2016.
Maður er nefndur Birkir Örn Stefánsson og skv veiðibók lenti hann í skrýtnu ævintýri við veiðistaðinn Góðahvamm í Reykjunni. Þegar færslan er skoðuð, kemur á daginn að 62 cm hængur hafi ginið við bæði Rektor og Black Ghost. Í athugasema dálkinu eru hlutirnir útskýrðir. Þar skrifar Birkir: Laxinn tók fyrst Rektorinn en sleit tauminn. Tók síðan Black Ghost þremur mínútum síðar og var veiðarfæratjóni þar með afstýrt.
Nú er það vel þekkt að laxar endurveiðast, sé þeim sleppt. Jafnvel þrisvar. En normið er að það líði dagar eða vikur á milli. Ekki þrjár mínútur! Umræddur lax hefði í ýmsum ám verið titlaður sá feigasti af öllum feigum, en heppinn var haann aað hafa hagað sér jafn geræðislega í Reykjadalsá þar sem öllum löxum er sleppt!












