Nú í kvöld var Hólaflúðin í Jöklu vettvangur afar minnistæðs atviks, veiðisögu sem mun seint líða viðkomandi veiðimanni úr minni.
Veiðimaðurinn er erlendur veiðimaður sem átti að hefja veiðar á seinni vaktinni í dag, en vegna alls konar tafa þá var hann kominn seint í hús. Allt var þó reynt til að hann næði einhverjum dreggjum af vaktinni. Það tókst ekki betur til en svo að þegar hann var kominn að Hólaflúð og búinn að setja saman, lifðu aðeins tólf mínútur af vaktinni. En það dugði. Vart hafði hann byrjað er stórlax greip fluguna. Þetta reyndist vera 97 cm hængur, e.t.v. tuttugu pund.
Við þetta má bæta, að alls veiddist 21 lax í Jöklu í dag og er það besti dagurinn til þessa. Smálax gerir sig æ meira gildandi, en stórir fiskar eru enn að ganga og veiðast, m.a. veiddust í dag tveir laxar sitt hvoru megin við 90 sentimetrana og tveir í „yfirstærð“ sluppu.










