Það er aðveiðast bara nokkuð ágætlega þessa daganna og það koma alltaf stórir fiskar í bland. Við heyrðum af tveimur i kvöld. Verða eflaust fleiri á morgun. En kíkjum aðeins á þessa tvo, annar var laxahundraðkadl, hin var rígfullorðinn sjóbirtingur.

Fyrst er það Bill sem samkvæmt FB síðu Laxár í Kjós fékk „Belter“ á Engjunum. „Belter“ er í hrárri islenskri þýðingu helvíti mikill fiskur og myndin ber það með sér, Bill er ekkert að ýkja uppstyllinguna allt of mikið og við á VoV skjótum á ca 16 punda fisk. Veiði annnars verið góð í Kjós í sumar.
Svo gat það ekki verið annar en Nils karlinn Folmer Jörgensen. Hann var í Jöklu og veiddi vel, landaði að sögn tíu löxum og hollnu gekk auk þess vel, enda góðar göngur þar eystra. En Nilli, samur við sig, landaði 102 cm trölli og tilkynnti svo að hann væri mættur á bakka Laxár í Aðaldal. Ætli þetta verði ekki toppað þar?










