Líflegar opnanir Hofsár og Selár

Ívar Kristjánsson og Ari Þórðarson með fallegan Hofsárhöfðingja í gær.

Systurnar Hofsá og Selá opnuðu báðar í gærmorgun. Smá rugl hjá VoV með Selá sem oftar en ekki hefur opnað deginum fyrr, en svona var þetta núna. Byrjunin verður að teljast bærilega góð, sérstaklega þegar borið er saman við daufar opnanir í furðu mörgum ám

Sir Sim með glæsilega Selárhrygnu í gær. Myndin er frá SRP

Selá gaf sex laxa og nokkrir rifu sig lausa af flugunum að auki. Mest var lífið í Fosshyl, en það líka lax víðar. Allt var þetta fallegur og vel haldinn tveggja ára lax. Sir Jim Ratcliffe, eigandi Six Rivers Project og eigandi fjölda jarða á þessum slóðum, fór mikin og landaði fjórum af þessum löxum, og alir tóku Sunray sem hann hefur mikið dálæti á. Sagan segir að eitt sumarið hafi hann veitt 102 laxa í Vesturdalsá og aldrei skipt um flugu. Fékk þá alla á Sunray.

Búið að landa úti í á við erfiðar aðstæður og mikil gleði í gangi. Þetta eru auk leiðleögumannsins Gísli Ásgeirsson og Sir Jim Ratcliffe. Myndin er frá SRP

Á sama tíma komu fjórir á land í Hofsá og veiddust vítt og breitt. Einnig þar sluppu nokkrir þannið að ljóst er í báðum ánum er kominn álitlegur reytingur af laxi. „Þetta voru allt tveggja ára laxar, utan einn smálax. Hann veiddist í Hvammshyl“, sagði Ari Þórðarson á bökkum Hofsár í gær.

Hafralónsá, Þistifjörður, laxveiði.
Veiðistaðurinn Gústi í Hafralónsá, einn af bestu veiðistöðum árinnar. Mynd Nils Folmer Jörgensen.

Þess má og geta að nágrannaáin Hafralónsá var einnig opnuð í gær. Þar veiddust fimm laxar sem telst nokkuð flott opnuun. Allt var það boltafiskur og veiðistaðirnir Gústi og Stapi sterkur að venju í upphafi vertíðar.