Laxveiðin byrjar ekki með hvelli

Fallegt var við Blödu þegar ain var opnuð. Vantaði bara laxinn. Mynd Höskuldur Birkir Erlingsson

Laxveiðin er hafin en ekki verið sagt að neinn sérstakur glæsibragur hafi verið yfir veislunni. Fisklausar vaktir i Blöndu tíu laxa opnunarholl í Norðurá sem seint verður talið ásættanlegt. Fjórir fyrir hádegi úr Þverá. Já ekki var samt alls varnað og nokkuð líflegt var í Urriðafossi og laxinn hefur svo sést víðar, t.d. í Laxá í Kjós og Elliðaánum. Of snemmt sem sagt að aðskrifa stórlaxinn.

Einn sá fyrsti 2022, David Masson með flottan lax úr Þverá.

Hitt er annað mál að ef að þetta ástand batnar ekki þá horfa menn til styrkst smálaxagangna, sem koma jafnan síðar. En sem sagt, það hefur verið lítið að frétta til þessa, vonandi að úr rætist.