Rosalegt tröll úr Geirlandsá

96 cm....hvað er þá veiðimaðurinn? Innan við meter á hæð :-) En burtséð frá öllu gríni um myndatökur, þá er þetta magnaður fiskur!

Rosa tröll kom á land í síðasta holli í Geirlandsá, 96 cm birtingur sem er sá næst stærsti sem við höfum frétt af í vor. Hollið var með á fimmta tug birtinga, marga um og yfir 80 cm, gömlu árgangarnir rokka enn!

Í færslu Óskars Færset á FB síðu SVFK segir: „Ártúr Karlsson og félagar voru ađ enda í Geirlandi nú eftir hádegi og gerðu flotta veiđi í erfiðum aðstæðum, mikill vindur allann tímann og enduðu ađ setja í 46 birtinga. Voru þeir dreifđir um öll Ármót frá Stjórn og niðureftir Ármótunum. Stærsti var um 96 cm og margir yfir 80 cm, fengust flestir á Nobblera og rauđar flugur .