Við höldum áfram og hér er komin önnur greinin af þó nokkrum sem munu birtast hér á næstu misserum þar sem við reynum að svara margvíslegum spurningum sem vakna á bökkum vatnanna. Hér spyrjum við hvað til bragðs skuli taka við vissar aðstæður í miklu sólskini.
Sól og logn?
JE: Þetta eru erfið skilyrði og krefjandi mjög. Best er að reyna að sjá hann áður en hann sér þig, finna hann án þess að fæla hann. Því vatnsminni sem áin er, því viðkvæmari er aðferðin. Ég myndi lengja tauminn í samræmi við stærð árinnar. Hafa hann þó alltaf langan við þessar aðstæður og fluguna litla. Byrja ofarlega, standa eins langt frá ætluðum legu/tökustað og frekast er kostur. Oft sést fiskur vaka við þessar aðstæður, það er gott, maður getur staðsett hann og þá er oft ráðið að nota þurrflugu, Adams, Black Gnat, Royal Coachman eða brúnar Sedge Parasjútur. Galdralöppin er líka alltaf frábær og hún er annars besta leitarflugan meðal þurrflugna. Ég hef ekki nægilega reynslu af vatnaveiði til að tjá mig að ráði.
BM: Litlar Þurrflugur/nymphyr(#14-22) og léttir taumar og nettar græjur, þetta geta verið leiðinda skilyrði þegar veðrið er of gott, þarft að kasta mjög vel og láta lítið fyrir þér fara þegar aðstæður eru svona. En mér þykir alltaf mjög spennandi að veiða við þessar aðstæður, sjá fiskinn nánast allan tíman ná réttu kasti, réttu drifti og þegar hann tekur við þessar aðstæður veistu að þú ert að gera eitthvað rétt.
RH: Þá nota ég þurrflugur og nettari stangir, fyrir línu 3 til 5 Logn og sól er frábært bleikjuveður.
gg: Vil aðeins bæta við ráð og athugasemdir félaga minna, að í vatnaveiði í sól og logni hefur mér oftar en einu sinni tekist að koma af stað tökuhrinum með því að nota flotlínu, langan taum, næstum hálfa aðra stangarlengd og strippa hratt, líkt og í laxveiði, hefðbundnar votflugur á borð við Tiel and black og Watson fancy. Hefur virkað bæði á urriða og bleikju og sérstaklega þegar mikið var um uppitökur.
Sól og vindur?
JE: Þá fer ég frekar í púpur. Þetta eru strax ekki nærri eins viðkvæm skilyrði og í logninu. Maður getur oft séð uppitökurnar þó að blási aðeins og þá eru púpur málið. Sjái maður ekki uppitökurnar þá er að leita með straumflugunni. Þannig getur maður staðsett fiskinn, hann tekur eða sýnir sig og þá er hægt að annað hvort halda áfram með straumfluguna eða skipta yfir í púpur. Eins og fyrr hjá mér gildir þetta aðallega um straumvatnsveiði, sem ég stunda miklu mun meira en vatnaveiði.
BM: Ef það er bara vel gárað nota ég þurrfluguna eða óþyngdar nymphur(#10-16) einnig í þessum aðstæðum, maður getur leyft sér aðeins þykkara taumefni en þessar aðstæður eru oft mjög góðar í silung.
RH: Hvernig ég ber mig að við þessar aðstæður fer eftir því hvort að verið er að veiða urriða eða bleikju. Í urriða, veiða í öldurótinu,bleikjuna hlémegin.












