Jóhann Ólafsson tók fimm ára son sinn Júlían með í veiðitúr í fyrsta skipti fyrir skemmstu og drengurinn var strax komin í topp mál. Fyrsti fiskurinn kom á þurrt í fjórða kasti.

VoV sló á til Jóhanns og bað hann um veiðisöguna og hún var svohljóðandi: „Já sæll, það er kannski ekki frá mörgu að segja,en þetta var samt stór dagur fyrir 5 ára dreng sem fékk að fara í fyrsta veiðitúrinn með pabba sínum. En við sem sagt skelltum okkur á fimmtudaginn í Hörgá, nánar tiltekið í Bægisárhylinn sem er alveg með eindæmum barnavænn veiðistaður og er yfirleitt mikið af bleikju í honum á þessum tíma.En við vorum mættir um kl 17 og byrjaði strákurinn strax að kasta spún og setur í landar fyrstu bleikjunni í 4 kasti. Góð byrjun það hjá honum.Eftir það kastar hann og kastar og lítið gengur og allt fullt af fiski, en hann skilur ekkert í þessu, það er að segja að bleikjan taki ekki. Þá græjaði ég flugustöngina og setti einhvern rauðan vínil kúluhaus undir og við feðgar settum í nokkrar bleikjur upstream í sameiningu. Eftir nokkra stund hættir hún að taka og þá skiptum við um flugu og setjum Peacock undir og þá byrjar takan aftur. Aftur þurftum við svo að skipta um flugu og þá var það Rollan sem fór undir og enduðum við með 11 bleikjur og þó nokkra missta fiska og tökur. Það er skemmst frá því að segja að strákurinn vildi ekki hætta og lætur mig ekki í friði og vill ólmur komast aftur. Og auðvitað verður aflinn grillaður.“












