Þetta var nú frekar í lakari kantinum í Langá þó að menn hafi af og til séð verri tölur. Líklega er þetta einn af mörgum „varnarsigrum“ sumarsins því ríflega 1400 laxar er ekki heimsendir. Hreinar og klárar smálaxaár eins og Langá eru alltaf að fá það óþvegið þegar smálagöngur eru slakar. Það segir mikla sögu að sveiflan frá hinu frábæra sumri 2015 var 1183 laxar í mínus.

Dags. skráningarFjöldi laxaStangirLengd tímabilsVeiði sl. tímabilVeiði pr. stöng sl. tímabilVeiði pr. stöng pr. dag sl. tímabil
29.6.2016207
6.7.201637412716713,92,0
13.7.2016471127978,11,2
20.7.201662312715212,71,8
27.7.20167311271089,01,3
3.8.2016825127947,81,1
10.8.2016875127504,20,6
17.8.2016963127887,31,0
24.8.20161033127705,80,8
31.8.20161106127736,10,9
7.9.20161159127534,40,6
14.9.20161229127705,80,8
21.9.20161312127836,91,0
26.9.2016143312512110,12,0

Þegar menn rýna í töfluna okkar skal hafa í huga að þó að áin sé gefin upp sem 12 stanga á hjá angling.is þá er aðeins veitt með 8 stöngum fyrst og síðast. Fyrstu tölur á angling.is miðast við 29.6, þá komnir 207 laxar í bók, en það er frá opnun 21.6 og þá og fyrstu daganna eru stangirnar einnig aðeins átta. Þrátt fyrir verulega niðursveiflu frá 2015  upplifðu menn ána alls ekki laxlitla, þvert á móti, það var talsvert af fiski og meira af stórum en venjulega í Langá. Og þó að Langá búi að vatnsmiðlun í Langavatni sem bjargar vatnsbúskapnum lengi vel, þá unnu þurrkarnir á þessu öllu saman áður en yfir lauk og áin var mjög vatnslítil um tíma. Því fylgdi afar dauf taka allt þar til að fór að rigna um haustið. Nú hafa fiskifræðingarnir álitið sem svo að smálaxagöngur gætu orðið sterkar á komandi sumri og á sem geymir fáa stórlaxa er ekki að fara að finna svo mikið fyrir því á milli ára. Leiðin liggur því ekkert annað en upp á við á Langárbökkum.