Þetta var erfitt sumar í Norðurá og einn „varnarsigurinn“ enn var hér á ferð. En smálaxafæð og vatnsleysi vegna endalausra þurrka léku ána grátt. Fallið í Norðurá frá hinu stórgóða veiðisumri 2015 var 1544 laxar. Fjögurra stafa tala hafðist þó og vel það, 1342 var niðurstaðan. Ekki beint það sem margir spáðu þó eftir eina mögnuðust byrjun sem um getur.
| Dags. skráningar | Fjöldi laxa | Stangir | Lengd tímabils | Veiði sl. tímabil | Veiði pr. stöng sl. tímabil | Veiði pr. stöng pr. dag sl. tímabil |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 15.6.2016 | 213 | |||||
| 22.6.2016 | 280 | 7 | 67 | |||
| 29.6.2016 | 450 | 7 | 170 | |||
| 6.7.2016 | 634 | 15 | 7 | 184 | 12,3 | 1,8 |
| 13.7.2016 | 801 | 15 | 7 | 167 | 11,1 | 1,6 |
| 20.7.2016 | 880 | 15 | 7 | 79 | 5,3 | 0,8 |
| 27.7.2016 | 953 | 15 | 7 | 73 | 4,9 | 0,7 |
| 3.8.2016 | 1000 | 15 | 7 | 47 | 3,1 | 0,4 |
| 10.8.2016 | 1039 | 15 | 7 | 39 | 2,6 | 0,4 |
| 17.8.2016 | 1130 | 15 | 7 | 91 | 6,1 | 0,9 |
| 24.8.2016 | 1171 | 15 | 7 | 41 | 2,7 | 0,4 |
| 31.8.2016 | 1218 | 15 | 7 | 47 | 3,1 | 0,4 |
| 7.9.2016 | 1297 | 15 | 7 | 79 | 5,3 | 0,8 |
| 10.9.2016 | 1342 | 15 | 3 | 45 | 3,0 | 1,0 |
Ef rýnt er í tölurnar sést hversu harðlífið var ofboðslegt. Þetta er skráð 15 stanga á og var sala og nýting góð. Taka verður þó tillit til þess að áin er aðeins komin með allar 15 stangirnar virkar frá vikunni sem hefst 6.júlí, en fram að því eru tíu stangir að veiðum. Vikuna 17-24.ágúst veiðist þó aðeins 41 lax. Næstu viku á eftir 47. Þá er vikan 3.-10.ágúst afleit með 39 laxa. En stórlaxagöngur björguðu miklu, þó er Norðurá ekki fræg lengur fyrir sína stóru laxa. Kannski að þeir séu að koma eitthvað til baka. Þó líklega ekki næsta sumar, því eins og kunnugt er, þá eru sterk tengsl milli smálaxagangna eitt árið og stórlaxagangna þess næsta.










