
Nú er væn sneið af hinum svonefnda besta tíma í laxveiðinni liðinn og tölur ekki til að hrópa húrra fyrir. Sumir myndu segja að tónninn væri gefinn, það gangi ekkert meira þetta sumarið sem geti skipt sköpum. Aðrir segja, sjáum til, náttúran er óútreiknanleg.
Þegar grannt er skoðað þá eru aðeins tvær ár með betri tölu en á sama tíma í fyrra og aðrar minna. Í all nokkrum tilvika miklu minna. Þær tvær sem skera sig úr eru Hofsá og Selá. Hofsá er ekki langt yfir sinni tölu frá síðasta sumri, en það sumar, 2022, var gott í ánni, þannig að haldi áin sæmilegum dampi gæti 2023 orðið nokkuð gott. Hvað Selá varðar er erfiðara að segja til um því að nýjar og hertari reglur við veiðarnar gætu skilað lægri tölu en gömlu reglurnar hefðu gert. En þar á bæ er ekki verið að velta svoleiðis hlutum fyrir sér, veiðiálagið þar er skapað til að hlífa laxinum frekar en hitt. Fyrir utan Vopnafjarðarsysturnar geta menn helst verið nokkuð ánægðir með gang mála það sem af er í Jöklu. En annars er veiðin ekki á pari við 2022, sem var þó ekki sumar til að æsa sig yfir.
Þvert ofan í þessar slöku veiðitölur hafa verið fréttir um líflegar og jafnvel „sterkar“ göngur smálaxa. Veiðitölur til þessa endurspegla það þó tæplega og spurning hvort að verið sé að ofmeta göngurnar. Ekki skal lagt mat á það hér og nú, en eins og við höfum nefnt í fyrri fréttum, þá tala tölurnar sínu máli, hvernig svo sem menn kjósa að túlka þær.

En undir blálok síðustu viðmiðunarviku angling.is bárust vissulega fréttir héðan og þaðan af góðum skotum og nýjum fiski að ganga. Tvær stangir sem Karl Lúðvíksson staðarhaldari og leiðsögumaður við Langá hélt utan um lönduðu t.d. 14 löxum yfir tvær vaktir. Mest af því var nýr fiskur.
Þá greindi Ingólfur Ásgeirsson hjá Störum ehf frá tíu laxa síðdegisvakt í Bíldsfelli í Soginu og fengu stangirnar þrjár einnig nokkrar stórbleikjur og sjóbirtinga, utan þess að missa nokkra fiska af öllum sortunum. Það var meira og minna nýgenginn lax að auki. Þá sagði Nils Folmer frá 9 laxa degi í Laxá í Aðaldal þar sem hann landaði allt að 100 cm boltum. Lét hann þess getið að áin bæri merki þess að sínum dómi, að vera að hefja viðreisn sína eftir mörg mögur ár. Þá má skjóta með frétt frá SVFR af 2 daga holli í Haukadalsá sem landaði 33 löxum á fimm stangir, eða ríflega sex löxum á stöng. Ekki alslæmt það.
Og fleira höfum við verið að heyra utan að okkur, héðan og þaðan. Nefna má í því sambandi t.d. Hítará og Laxá í Kjós. Ef til vill er þetta allt að koma. Ef til vill eru göngurnar ekki ofmetnar og eitthvað, skilyrði eða annað, valdi því að tölur eru ekki sem skyldi. Vonandi. Því þá getur allt batnað.En í byrjun ágúst er eiginlega síðasti straumurinn sem getur skorið úr um hvernig vertíðin þróast.









