
Veiði hefur gengið prýðilega í Veiðivötnum og svæðið skartar sínnu fegursta þessa daganna. Veiðivötn eru þekkt fyrir stórfiska og einn sá rosalegasti í langan tíma veiddist fyrir skemmstu.
Við vitum þau deili ein á veiðimanninum að hann heitir Jafet og að ferlíkið sem hann dró á land úr Skálavatni var 16,4 pund. Er það stærsti fengur í Veiðivötnum á þessu sumri. Önnur vötn hafa einnig gefið mikla drjóla, Hraunvötn eru til dæmis alltaf með þá allra stærstu og hafa nú gefið þá nokkra allt að 11,2 pund. Stærstur úr Litlasjó var 9,2 pund og margir aðrir rígvænir hafa verið dregnir á þurrt. Annars er Litlisjór efstur að vanda í röðum urriðavatnanna með 3009 fiska. Ónýtavatn hefur verið allt annað en ónýtt með 781 fisk, Hraunvötn 611 og Stóra Fossvatn 606 stykki.
Af bleikjuvötnunum ber Snjóölduvatn af að vanda með 2131 bleikju, en Langavatn er næst með 1182 fiska. Kvíslavatn var með 668 fiska, en önnur færri. Bleikjan nær ekki sömu stærð og urriðinn í vötnunum. Stærsta skráða bleikja er 5 punda úr Breiðavatni, 4,4 pund úr Kvíslavatni og 4 pund úr Skyggnisvatni. Meðalþyngdin í bleikjuvötnunum undantekningarlaust lægri í bleikjuvötnunum heldur en í þeim sem geyma urriða.
Annars má skoða nánari veiðifréttir, skýrslur og myndir á myndarlegum vef Veiðivetninga, sem haldið er úti af Erni Óskarssyni.









