100 cm viðmiðið var rofið við Laxá í Aðaldal í morgun, er 100 cm hængur tók, var landað, mældur og sleppt. Eins og kvarðinn segir, þá er þetta tuttugu pundari.
Fiskinn veiddi Vigfús Jónssonvið Staurinn, sem er ein af mörgum holum Kistukvíslar. Hann tók Sunray þegar klukkutími var eftir að vaktinni og var Vigfús 40 mínútur að landa honum. Þó að all nokkrir mjög stórir laxar hafi veiðst það sem af er vertíð, þá er þetta aðeins annar laxinn sem við höfum heyrt af sem nær þriggja stafa sentimetratölunni. Áður hafði 110 cm sleggja veiðst í Blöndu.










