
Stangaveiðivertíðin hefst í fyrramálið. Það er ekki aprílgabb. Eins og títt er snemma á vorin þá eru veður allt frá því að vera válynd og yfir í að vera nokkuð stillt. Langvinn frost og snjókoma sem settu allt á kaf og á ís hafa nú gefið eftir fyrir hlýnun síðustu daga. Hvernig skyldu þá horfur vera?
Menn einblína gjarnan á Vestur Skaftafellssýslu þó að miklu víðar opni. En við heyrðum í Sindra Hlíðari hjá Fish Partner í kvöld, en félag hans er með stóra sneið af komu veiðisvæða þess héraðs á sínum snærum, Tungufljót, Vatnamót, Fossála og nú síðast Geirlandsá. Sindri sagði nú í kvöld: „Geirlandsá og Tungufljot voru að ryðja sig í dag. Klakastíflur að bresta og mikið vatn. Vonandi að Vatnamot/Skaftá geri það sama í kvöld eða nótt.“ Sindri nefnir líka Skaftá því félagið hefur einnig Ásgarðssvæðið í Skaftá á leigu.
Auk þessa höfum við fregnað að Eldvatn og Tungulækur séu tilbúin í átökin. Báðar eru lindár. Það þarf nokkuð til að þær frjósi, en það gerðist nú samt í þetta sinn. Eru þó báðar búnar að losna við klakann að mestu leyti. Kunnáttumenn í vorveiði á sjóbirtingi þurfa ekki annað. Þeir kunna að egna fyrir birtinginn við þesar aðstæður og eflaust verða aflatölur á morgun.
VoV mun gera sitt besta til að fylgjast með gangi mála. Enn ein vertíðin er að hefjast og spurning hvernig fyrsti mánðurinn verður eftir jafn afbrigðilegt veðurfar og raunin hefur verið.









